534/2001
Reglugerð um breytingu á reglugerð fyrir talnagetraunir Íslenskrar getspár, nr. 892 10. desember 1999. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
3. gr. liður 3.1 orðist svo:
3.1. |
Íslensk getspá gefur út og dreifir leikspjöldum til þátttöku í talnagetraununum.Leikspjöld má einnig nálgast með rafrænum hætti í gegnum tölvu, síma eða gagnvirkt sjónvarp. Á hverju leikspjaldi Lottó 5/38 eru 10 leikir (raðir), sem merktir eru bókstöfunum A, B, C, D, E, F, G, H, I og J, og er hver leikur með tölunum 1-38. Getur hver þátttakandi tekið þátt í einum til tíu leikjum á hverju leikspjaldi. Á leikspjöldum fyrir Lottó 5/38 er sérstakur reitur sem þátttakendur merkja í ef þeir vilja taka þátt í Jóker. Þátttakendur geta valið 5 tölur úr tölunum 0-9 til að mynda Jókertölur sínar. |
|
Á hverju leikspjaldi Víkingalottós eru 10 leikir (raðir), sem merktir eru bókstöfunum A, B, C, D, E, F, G, H, I og J, og er hver leikur með tölunum 1-48. Getur hver þátttakandi tekið þátt í einum til 10 leikjum á hverju leikspjaldi. Á leikspjöldum fyrir Víkingalottó er sérstakur reitur sem þátttakendur merkja í ef þeir vilja taka þátt í Jóker. Þátttakendur geta valið 5 tölur úr tölunum 0 - 9 til að mynda Jókertölur sínar. |
|
Á sölustöðum skulu vera leiðbeiningar um þátttöku í viðkomandi talnagetraun. Þar skal og vera hvatning til þátttakenda að rita nafn sitt á þátttökukvittun í öryggisskyni. |
3. gr. liður 3.2. orðist svo:
3.2 |
Leikir í talnagetraununum Lottó 5/38 og Víkingalottó fara að jafnaði fram einu sinni í viku samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar Íslenskrar getspár en í Jóker samtímis útdrætti í Lottó 5/38 og Víkingalottói. |
3. gr.
3. gr. liður 3.10, sbr. reglugerð nr. 126 6. febrúar 2001, orðist svo:
3.10 |
Verð fyrir hvern leik (röð) í Lottó 5/38 er kr. 75, Jóker kr. 100 og í Víkingalottói kr. 35. Aðeins er unnt að gerast þátttakandi hjá söluaðilum Íslenskrar getspár eða með rafrænum hætti, sbr. lið 3.1. |
4. gr.
a) 5. gr. liður 5.1.1 nefnist 5.1.
b) 5. gr. liður 5.1.2 nefnist 5.1.1 og orðist svo:
5.1.1 |
Samtímis útdrætti í Lottó 5/38 fer fram útdráttur í Jóker tengdum þeirri talnagetraun. Útdráttur fer þannig fram að fimm hjól, hvert með tölunum 0-9, eru sett í gang og við stöðvun hjólanna koma fram hinar fimm útdregnu tölur. Tölurnar, í þeirri röð sem þær birtast, mynda Jókertölurnar. Verði bilun í einu eða fleirum af hinum fimm hjólum með tölunum 0-9, skal dregið úr einum eða allt að fimm, eftir því sem við á, þar til gerðum spjaldastokkum þar sem spjöldin eru merkt tölunum 0-9. Áður en slíkur útdráttur fer fram skal gengið úr skugga um að í spjaldastokkunum séu spjöldin merkt tölunum 0-9. |
Við 5. gr. lið 5.2. bætist nýr liður 5.2.1 er orðist svo:
5.2.1 |
Útdráttur í Jóker sem tengdur er Víkingalottói fer fram á miðvikudögum, með Jóker útdráttarvél sem varðveitt er í innsigluðum kassa, með eftirfarandi hætti: |
|
Fimmtán mínútum eftir lokun sölukerfis ræsir starfsmaður Íslenskrar getspár útdrátt í vélinni. Útdrátturinn fer fram með sama hætti og lýst er í lið 5.1.1 og að viðstöddum eftirlitsmanni skv. lið 10.1. Útdrátturinn er tekinn upp á myndbandsspólu og honum síðan bætt aftan við útdrátt í Víkingalottói þegar hann berst um gervihnött. Víkingalottó- og Jókertölurnar eru síðan birtar samdægurs í ljósvakamiðlum. |
5. gr. liður 5.5.1 orðist svo:
|
a) |
56% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa allar 5 aðaltölur réttar. Með vísan til 5. gr., lokamálsliðar 5.6, er heimilt, ef 56% af heildarvinningsfjárhæð nær ekki 3 milljónum króna, bæta við fyrsta vinningsflokk fjárhæð, sem þarf til að vinningsfjárhæðin fari yfir 3 milljónir króna. Viðbót þessi skal hlaupa á 50.000 krónum. |
|
b) |
5% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 4 aðaltölur réttar og auk þess rétta bónustölu. Með vísan til liðar 5.6., 3. mgr., er heimilt, ef 5 % af heildarvinningsfjárhæð nær ekki 300.000 krónum, að bæta við þennan vinningsflokk fjárhæð sem þarf til að vinningsfjárhæðin fari yfir 300.000 krónur. Viðbót þessi skal hlaupa á 10.000 krónum. |
|
c) |
8 % skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 4 aðaltölur réttar. |
|
d) |
19 % skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 3 aðaltölur réttar. |
|
e) |
12 % skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 2 aðaltölur réttar og auk þess rétta bónustölu |
5. gr. liður 5.5.3, sbr. reglugerð nr. 126 6. febrúar 2001, orðist svo:
|
a) |
Fyrsti vinningur er sameiginlegur hjá þátttökuaðilum sbr. 2. gr. Greiðir hvert talnagetraunafyrirtæki 0,035 Evrur af andvirði hvers selds leiks til þessa vinnings. Verðmæti hans í íslenskum krónum ákvarðast af kaupgengi Evru á útdráttardegi og skiptist jafnt á milli þeirra sem hafa allar 6 tölurnar réttar. |
|
b) |
Til annarra vinninga renna 40% af heildarsölu hverrar leikviku hér á landi að frádreginni greiðslu Íslenskrar getspár til fyrsta vinnings sbr. a) lið og skiptast í vinningsflokka í eftirgreindum hlutföllum: |
|
1. |
40% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 5 aðaltölur réttar og auk þess rétta eina af tveimur bónustölum. |
|
2. |
18% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 5 aðaltölur réttar. |
|
3. |
31% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 4 aðaltölur réttar. |
|
4. |
11% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 3 aðaltölur réttar og auk þess rétta eina af tveimur bónustölum. |
8. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum um talnagetraunir nr. 26 2. maí 1986, öðlast þegar gildi.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 26. júní 2001.
Sólveig Pétursdóttir.
Ólafur W. Stefánsson.