Í stað 1. og 2. mgr. 33. gr. komi ný málsgrein, svohljóðandi:
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 60. og 67. gr. umferðarlaga, nr. 50 30. mars 1987, sbr. lög nr. 44 7. maí 1993, svo og með hliðsjón af 16. a tölul. við XIII. viðauka við EES-samninginn (tilskipun 96/96/EB með breytingum með tilskipun 1999/52/EB, sbr. EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, 41. hefti 1997, bls. 1-19, og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/99 frá 26. nóvember 1999).
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 60. og 67. gr. umferðarlaga, nr. 50 30. mars 1987, sbr. lög nr. 44 7. maí 1993, öðlast þegar gildi.