1. gr.
1. og 2. málsl. 1. málsgr. 11. gr., sbr. reglugerð nr. 638/1995, orðist svo:
Verð hlutamiða er 800 kr. í hverjum flokki. Fyrir ársmiða skal greiða 9.600 kr.
2. gr.
14. gr., sbr. reglugerð nr. 625/1996, orðist svo:
Vinningar í happdrættinu skulu eigi vera færri en svo, að að minnsta kosti fjórði hver miði hljóti vinning árlega að meðaltali, og skal fjárhæð vinninga nema að minnsta kosti 70% af iðgjöldum samantöldum í öllum 12 flokkum. Vinningar í hverjum flokki skiptast í tvo hluta, almennan hluta og sjóðshluta.
Stjórn happdrættisins ákveður, að fengnu samþykki happdrættisráðs, vinningatölu og verðmæti vinninga í hinum almenna hluta vinninga hvers flokks. Til almennra vinninga skal verja 7/8 hlutum af heildarfjárhæð vinninga ársins. Vinningaskráin vegna almenna hlutans skal samin fyrirfram fyrir hvert ár. Til vinninga í sjóðshluta skal verja 70% af 1/8 hluta af andvirði hvers selds miða í hverjum flokki. Falli sjóðsvinningur í flokki á óseldan miða skal hann leggjast við heildarfjárhæð sjóðsvinninga í næsta flokki. Í 12. flokki skal útdrætti sjóðsvinninga haldið áfram með þeim hætti að einn seldur miði í hverri útgefinni miðaröð happdrættisins hljóti vinning. Fjárhæð sjóðsvinninga í 12. flokki skal ákvörðuð þannig að þeirri fjárhæð sem varið var á árinu til vinninga í sjóðshluta verði að fullu ráðstafað sem vinningum á selda miða.
3. gr.
19. gr., sbr. reglugerð nr. 705/1997, orðist svo:
Útdráttur vinninga fer fram sem hér segir:
I. Fyrri hluti útdráttar vinninga í hverjum flokki fer fram með eftirfarandi hætti:
A. Útdráttur hæstu vinninga í almenna hlutanum:
Vinningsnúmer vegna hæstu vinninga í 1.-12. flokki eru dregin út með notkun fimm hólfa stokksins. Númerin skulu vera á bilinu 1 - 60.000. Tölur sem koma fram í hólfum stokksins mynda miðanúmerið. Lesið skal frá vinstri til hægri þegar horft er framan á stokkinn. Ef ekki reynist unnt af tæknilegum ástæðum að nýta fimm hólfa stokkinn við útdrátt hæstu vinninga er heimilt að nýta átta hólfa stokkinn í hans stað. Tölur sem koma fram í þeim fimm hólfum stokksins sem eru fjærst snúningshnúð mynda miðanúmerið. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Útdregið vinningsnúmer er því aðeins gilt að það sé á bilinu 1 - 60.000.
B. Útdráttur annarra vinninga en hinna hæstu og næst hæstu í almenna hlutanum fer fram með tvennum hætti:
1. Með notkun tölvu:
a. Valin er 48 stafa lykiltala. Fer valið fram með notkun átta hólfa stokksins og er sú átta stafa tala sem fram kemur skráð. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Aðgerðin er endurtekin þar til fyrir liggur 48 stafa tala.
b. Tölvan er hreinsuð og færð í upphafsstöðu.
c. Valið er dráttarforrit og annar hugbúnaður sem tekinn er undan innsigli og búnaðurinn settur í tölvuna. Dráttarforritið skal hannað til að draga út önnur miðanúmer en þau sem hlotið hafa hæsta vinning.
d. Lykiltalan og upplýsingar varðandi útdráttinn, svo sem fjöldi númera og vinningsfjárhæðir, eru settar inn frá lyklaborði tengdu tölvunni og prentast jafnframt út.
e. Tölvan dregur og prentar út skrá sem verður hluti af vinningaskrá.
2. Með notkun stokks:
Valdar eru tveggja stafa tölur. Valið fer fram með notkun fimm eða átta hólfa stokks og er sú tala, sem fram kemur og síðustu tveir stafir mynda, skráð. Þegar fimm hólfa stokkur er notaður skal lesið frá vinstri til hægri þegar horft er framan á stokkinn. Lesið skal frá þeim enda átta hólfa stokksins sem fjær er snúningshnúð. Val er endurtekið þar til tilskilinn fjöldi talna hefur fengist. Tölurnar verða hluti af vinningaskrá, en þær vísa til síðustu tveggja tölustafa í hverju miðanúmeri. Þau miðanúmer sem þannig er vísað til eru vinningsnúmer.
C. Að þessum útdrætti loknum er prentuð út heildarvinningaskrá sem happdrættisráð staðfestir með undirskrift sinni.
Sé óskað eftir afriti skrárinnar á disklingi eða segulbandi skal það nú gert.
Dráttarforrit og annar hugbúnaður er tekinn til varðveislu af happdrættisráði.
Happdrættisráðið færir í gerðabók skýrslu um framkvæmd útdráttarins.
II. Síðari hluti útdráttar vinninga í hverjum flokki happdrættisins fer fram með eftirfarandi hætti:
A. Útdráttur næst hæstu vinninga í almenna hlutanum.
Vinningsnúmer vegna næst hæstu vinninga almenna hlutans í 1.-12. flokki eru dregin út með notkun tölvu:
a. Valin er 48 stafa lykiltala. Fer valið fram með notkun átta hólfa stokksins og er sú átta stafa tala sem fram kemur skráð. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Aðgerðin er endurtekin þar til fyrir liggur 48 stafa tala.
b. Tölvan er hreinsuð og færð í upphafsstöðu.
c. Valið er dráttarforrit og annar hugbúnaður sem tekinn er undan innsigli og búnaðurinn settur í tölvuna. Dráttarforritið skal hannað til að draga út miðanúmer úr skrá seldra miðanúmera (tölunúmer ásamt bókstöfunum B,E,F,G eða H).
d. Skrá seldra miðanúmera er flutt í tölvuna. Hvert selt trompmiðanúmer skal hafa verið skráð fimm sinnum í skrána þar eð trompmiði hefur sama gildi og fimm einfaldir miðar. Vinningsnúmer (tölunúmer ásamt bókstöfunum B,E,F,G og H) vegna þegar útdregins hæsta vinnings skulu tekin úr skránni ef þau er þar að finna.
e. Lykiltalan og upplýsingar varðandi útdráttinn, svo sem fjöldi númera og vinningsfjárhæðir, eru settar inn frá lyklaborði tengdu tölvunni og prentast jafnframt út.
f. Tölvan dregur og prentar út skrá sem verður hluti af vinningaskrá. Í hvert sinn sem trompmiðanúmer er dregið út úr skránni hlýtur eigandi þess sömu fjárhæð og eigendur útdreginna einfaldra miðanúmera. Í útdrætti er mögulegt að fimm vinningar falli á sama trompmiðann.
B. Í 1.-11. flokki fer útdráttur vinninga í sjóðshluta þannig fram:
1. Vinningsnúmer vegna hæstu vinninga eru dregin út með notkun fimm hólfa stokksins. Lesið skal frá vinstri til hægri þegar horft er framan á stokkinn. Númerin skulu vera á bilinu 1 - 60.000. Tölur sem koma fram í hólfum stokksins mynda miðanúmerið.
2. Útdráttur annarra vinninga fer fram með eftirfarandi hætti:
a. Valin er 48 stafa lykiltala. Fer valið fram með notkun átta hólfa stokksins og er sú átta stafa tala sem fram kemur skráð. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Aðgerðin er endurtekin þar til fyrir liggur 48 stafa tala.
b. Tölvan er hreinsuð og færð í upphafsstöðu.
c. Valið er dráttarforrit og annar hugbúnaður sem tekinn er undan innsigli og búnaðurinn settur í tölvuna. Dráttarforritið skal hannað til að draga út önnur miðanúmer en þau sem hlotið hafa hæsta vinning.
d. Lykiltalan og upplýsingar varðandi útdráttinn, svo sem fjöldi númera og vinningsfjárhæðir, eru settar inn frá lyklaborði tengdu tölvunni og prentast jafnframt út.
e. Tölvan dregur og prentar út skrá sem verður hluti af vinningaskrá.
C. Í 12. flokki eru vinningsnúmer í sjóðshluta dregin út með notkun tölvu:
a. Valin er 48 stafa lykiltala. Fer valið fram með notkun átta hólfa stokksins og er sú átta stafa tala sem fram kemur skráð. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Aðgerðin er endurtekin þar til fyrir liggur 48 stafa tala.
b. Tölvan er hreinsuð og færð í upphafsstöðu.
c. Valið er dráttarforrit og annar hugbúnaður sem tekinn er undan innsigli og búnaðurinn settur í tölvuna. Dráttarforritið skal hannað til að draga út miðanúmer úr skrá seldra miðanúmera (tölunúmer ásamt bókstöfunum B, E, F,G og H), þó þannig að aðeins dragist út eitt vinningsnúmer í hverri bókstafsröð.
d. Skrá seldra miðanúmera er flutt í tölvuna.
e. Lykiltalan og upplýsingar varðandi útdráttinn, svo sem fjöldi númera og vinningsfjárhæðir, eru settar inn frá lyklaborði tengdu tölvunni og prentast jafnframt út.
f. Tölvan dregur og prentar út vinningaskrá.
D. Að þessum útdrætti loknum er prentuð út heildarvinningaskrá sem happdrættisráð staðfestir með undirskrift sinni.
Sé óskað eftir afriti skrárinnar á disklingi eða segulbandi skal það nú gert.
Dráttarforrit og annar hugbúnaður er tekinn til varðveislu af happdrættisráði.
Happdrættisráðið færir í gerðabók skýrslu um framkvæmd útdráttarins.
4. gr.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt lögum um Happdrætti Háskóla Íslands, nr. 13 13. apríl 1973, öðlast gildi 1. janúar 1999.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 19. nóvember 1998.
Þorsteinn Pálsson.
Fanney Óskarsdóttir.