999/2009
Reglugerð um breyting á reglugerð um útlendinga, nr. 53 23. janúar 2003, með síðari breytingum. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka 3, I:
-
Á eftir ríkjaheitinu Makaó kemur: Makedónía (fyrrum sambandslýðveldi Júgóslavíu), að því er varðar handhafa vegabréfa með lífkennum.
-
Á eftir ríkjaheitinu San Maríno kemur: Serbía að því er varðar handhafa vegabréfa með lífkennum en á ekki við um handhafa serbneskra vegabréfa sem gefin eru út af Serbnesku samræmingarstofnuninni (á serbnesku: Koodinaciona uprava).
-
Á eftir ríkjaheitinu Suður-Kórea kemur: Svartfjallaland að því er varðar handhafa vegabréfa með lífkennum.
2. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 6. gr. og 58. gr. laga um útlendinga nr. 96 15. maí 2002 öðlast gildi þegar í stað.
Dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, 18. desember 2009.
Ragna Árnadóttir.
Kristrún Kristinsdóttir.