1. gr.
Eftirfarandi breyting verður á 2. mgr. 4. gr.:
Orðin "enda starfi hann í þinghöldum með lögmanni sem hefur öðlast lögmannsréttindi hér á landi og er þá ábyrgur gagnvart dómstólnum." falla brott.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 1. gr. og 5. mgr. 6. gr. laga um lögmenn nr. 77/1998, sbr. 1. og 4. gr. laga nr. 93/2004, til innleiðingar á tilskipun nr. 98/5/EB, sem vísað er til í 2. tl. a. VII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2002, og öðlast gildi þegar í stað.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 12. apríl 2007.
F. h. r.
Þorsteinn Geirsson.
Bryndís Helgadóttir.