212/2010
Reglugerð um breyting á reglugerð um útlendinga, nr. 53 23. janúar 2003, með síðari breytingum. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á VII. kafla:
- Á eftir 44. gr. komi ný grein, 44. gr. a, sem orðist svo:
Heimilt er að veita dvalarleyfi á grundvelli 3. mgr. 11. gr. útlendingalaga, að fullnægðum skilyrðum 1. og 2. mgr. 11. gr., útlendingi sem kemur til landsins í lögmætum og sérstökum tilgangi m.a. þegar það er nauðsynlegt til efnda á þjóðréttarskuldbindingu um veitingu dvalarleyfis sem ekki fellur undir 12. gr. - 12. gr. e eða 13. gr.
- Í stað orðanna "2. mgr. 11. gr." í 1., 2. og 3. mgr. 45. gr. og í fyrirsögn 45. gr. komi: 12. gr. f.
- Í stað orðanna "3. mgr. 11. gr." í fyrirsögn 46. gr. komi: 12. gr. g.
- Orðin "eldri en 24 ára" í a-, b- og c-liðum 2. mgr. 47. gr. falla niður.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka 3, II. kafla:
7. tl. orðist svo: Handhafar diplómatavegabréfa, opinberra vegabréfa og þjónustuvegabréfa frá Tyrklandi, handhafar diplómatískra vegabréfa og þjónustuvegabréfa frá Pakistan og Suður-Afríku og handhafar diplómatískra vegabréfa frá Rússlandi.
3. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 6. gr. og 58. gr. laga um útlendinga nr. 96 15. maí 2002 öðlast gildi þegar í stað.
Dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, 8. mars 2010.
Ragna Árnadóttir.
Kristrún Kristinsdóttir.