1. gr.
Heildaraflaheimildir.
Á fiskveiðiárinu 2006/2007 skal sjávarútvegsráðherra úthluta aflaheimildum sem nema allt að 4.385 þorskígildislestum af botnfiski og ráðstafa til stuðnings byggðarlögum, þannig:
Byggðarlög samkvæmt 1. mgr. eru byggðakjarnar sem liggja að sjó og eru háðir veiðum og/eða vinnslu á sjávarafla. Minni byggðarlög teljast byggðarlög með færri íbúum en 1.500, miðað við 1. desember 2006.
2. gr.
Skipting aflaheimilda eftir botnfisktegundum.
Aflaheimildir samkvæmt 1. gr. skiptast á eftirgreindar botnfisktegundir, miðað við slægðan fisk, þannig: Þorskur 2.632 lestir, ýsa 1.432 lestir, ufsi 1.091 lest og steinbítur 190 lestir. Skulu þær dregnar frá leyfðum heildarafla þessara tegunda áður en honum er skipt á grundvelli aflahlutdeildar.
3. gr.
Úthlutun aflaheimilda til byggðarlaga.
Við úthlutun aflaheimilda til byggðarlaga skal miðað við að allt að 2.000 þorskígildislestum sé ráðstafað til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski.
Þá skal miðað við að allt að 2.030 þorskígildislestum sé ráðstafað til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa, sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í þeim.
Þá skal 750 tonnum úthlutað til byggðarlaga sem úthlutað var sérstökum aflaheimildum frá byggðastofnun, sbr. 4. gr. C.
Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. skal við útreikning á hlut hvers byggðarlags sá kostur ávallt valinn fyrir hvert byggðarlag sem gefur því mestar aflaheimildir samkvæmt útreikningi 4. gr. A eða 4. gr. B.
4. gr.
Útreikningur á aflaheimildum til byggðarlaga.
Við útreikning á hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags skal leggja til grundvallar eftirfarandi forsendur:
A. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir samkvæmt 1. mgr. 3. gr. koma í hlut hvers byggðarlags þar sem íbúar eru færri en 1.500. Við þann útreikning skal gefa hverju byggðarlagi punkta sem fundnir eru þannig:
Ráðuneytið metur hvaða viðmiðunarár er hagstæðast hverju byggðarlagi til útreiknings aflaheimilda samkvæmt þessari reglugerð og leggur þar til grundvallar tölulegar upplýsingar frá Fiskistofu. Sama fiskveiðiárið skal ávallt lagt til grundvallar við mat á öllum þáttum fyrir hvert byggðarlag, sbr. 1.-3. tl. 1. mgr., og hafi aukning orðið í einum þætti milli viðmiðunarára kemur hún til frádráttar. Samanlagðir punktar einstakra byggðarlaga ráða því hversu mikið af aflaheimildum kemur í þeirra hlut samkvæmt þessari grein en skulu þó að lágmarki vera 15 þorskígildislestir og að hámarki 150 þorskígildislestir.
Komi í ljós veruleg lækkun á reiknuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein skal ráðuneytið kanna, hvort raunverulegar breytingar hafi orðið á útgerð eða botnfiskvinnslu í viðkomandi byggðarlagi. Hafi svo ekki orðið er heimilt að halda úthlutuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein óbreyttum frá úthlutun fiskveiðiárið 2005/2006.
Hafi íbúum byggðarlags sem naut úthlutunar á síðasta fiskveiðiári fjölgað svo mikið að það eigi ekki lengur rétt á úthlutun samkvæmt þessari grein, skal ráðuneytið, næstu tvö ár þar á eftir, reikna út bætur og úthluta til byggðarlagsins. Þó skulu bætur aldrei vera hærri en sem nemur 2/3 af úthlutun fiskveiðiársins 2005/2006 á fyrra ári og 1/3 af úthlutun fiskveiðiársins 2005/2006 á síðara ári.
B. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags samkvæmt 2. mgr. 3. gr. Við þann útreikning skal leggja eftirfarandi forsendur til grundvallar:
Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á skel og rækju, sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildislestir eða minni frá fiskveiðiárinu 2001/2002, 2002/2003 eða 2003/2004 að telja til fiskveiðiársins 2005/2006 koma aflaheimildir, sem nema 70 þorskígildislestum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildislestir en minni en 1.500 þorskígildislestir í byggðarlagi koma 140 þorskígildislestir í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildislestir eða meiri í byggðarlagi koma 210 lestir í þess hlut. Nú sýna útreikningar að aflaheimildir koma einnig í hlut tiltekins byggðarlags samkvæmt A-lið þessarar greinar og skal þá einungis úthluta aflaheimildum til byggðarlags á grundvelli þess ákvæðis sem meira gefur.
C. Á fiskveiðiárinu 2006/2007 skal þeim byggðarlögum eða sveitarfélögum, sem úthlutað var sérstökum aflaheimildum frá Byggðastofnun, sbr. ákvæði til bráðabirgða XXVI við lög nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, á fiskveiðiárinu 2005/2006, úthlutað aflaheimildum sem nema 750 þorskígildislestum. Skulu þær skiptast milli byggðarlaga í sömu hlutföllum og úthlutun samkvæmt bráðabirgðaákvæðinu skiptist á fiskveiðiárinu 2005/2006. Um framkvæmd þessa ákvæðis gilda að öðru leyti önnur ákvæði þessarar reglugerðar.
D. Þegar reiknaður hefur verið út hlutur einstakra byggðarlaga samkvæmt A, B og C hér að ofan, skal hlutur sveitarfélaga með færri íbúa en 250 og sem úthlutað var aflaheimildum frá Byggðastofnun á fiskveiðiárinu 2005/2006, leiðréttur þannig að ekkert þeirra lækki um meira en 25 þorskígildistonn milli fiskveiðiáranna 2005/2006 og 2006/2007.
5. gr.
Tilkynningar um aflaheimildir.
Ráðuneytið tilkynnir sveitarstjórnum hversu miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags sem undir þær falla.
6. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 10. gr. og ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda fyrir fiskveiðiárið 2006/2007.
Sjávarútvegsráðuneytinu, 16. maí 2007.
F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Hinrik Greipsson.