1. gr.
Reglugerð þessi gildir um úthlutun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á tollkvótum samkvæmt samningi milli Íslands og Evrópubandalagsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og með vísun til 4. mgr. 12. gr. tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum, og í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993. Tollkvótar samkvæmt reglugerð þessari taka til vara sem upprunnar eru í ríkjum Evrópubandalagsins, sbr. bókun 4 við EES-samninginn.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:
Vöruliður: |
Vara |
Tímabil |
Vörumagn |
Verðtollur |
Magntollur |
kg |
% |
kr./kg |
|||
0202 |
Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst |
01.02.08 - 31.12.08 |
100.000 |
0 |
0 |
0203 |
Svínakjöt, fryst |
01.02.08 - 31.12.08 |
200.000 |
0 |
0 |
0207 |
Kjöt af alifuglum, fryst |
01.02.08 - 31.12.08 |
200.000 |
0 |
0 |
0208.9003 |
Rjúpur, frystar |
01.02.08 - 31.12.08 |
ótilgreint |
0 |
0 |
ex 0210 |
Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum (**) |
01.02.08 - 31.12.08 |
50.000 |
0 |
0 |
ex 0406 |
Ostur og ystingur (**) |
01.02.08 - 31.12.08 |
20.000 |
0 |
0 |
0406 |
Ostur og ystingur |
01.02.08 - 31.12.08 |
80.000 |
0 |
0 |
1601 |
Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum |
01.02.08 - 31.12.08 |
50.000 |
0 |
0 |
1602 |
Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum |
01.02.08 - 31.12.08 |
50.000 |
0 |
0 |
(**) Skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 510/2006 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.
Við innflutning á vörum sem falla undir þau tollskrárnúmer þar sem vörumagn er ótilgreint skal gilda sá verð- og/eða magntollur sem tilgreindur er í 1. mgr. yfir tilgreint tímabil.
3. gr.
Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins þar sem vísað er til skilmála reglugerðar þessarar.
4. gr.
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt.
Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs. Hafi tilboðsgjafi eigi leyst til sín tollkvótann innan þessa tímafrests er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra heimilt að bjóða næstbjóðanda óinnleystan tollkvóta.
Úthlutun skv. 1. og 2. mgr. er ekki framseljanleg.
5. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 509/2004 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
6. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
7. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 4. mgr. 12. gr. tollalaga og 65. gr. B laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2008.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 21. janúar 2008.
Einar K. Guðfinnsson.
Arnór Snæbjörnsson.