1. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1294/2005 frá 5. ágúst 2005 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1318/2005 frá 11. ágúst 2005 sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 113/2006, frá 23. september 2006 og reglugerð ráðsins (EB) nr. 1567/2005 frá 20. september 2005, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 23/2006, frá 11. mars 2006 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1916/2005 frá 24. nóvember 2005, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 114/2006, frá 23. september 2006, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.
2. gr.
Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.
3. gr.
Í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1567/2005 komi dagsetningin "31. desember 2006" í stað ,,31. desember 2005" í a-lið 6. mgr. 11. gr. reglugerðar nr. 74/2002.
4. gr.
Í samræmi við reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1318/2005 verða eftirfarandi viðbætur og breytingar við reglugerð nr. 74/2002:
1. Viðbætur í töfluna í A-hluta "Áburðarefni og jarðvegsnæring" í viðauka II á eftir "kalkleðja úr sykurhreinsunarstöðvum":
Heiti |
Lýsing, kröfur um samsetningu og notkunarskilyrði |
Kalkleðja úr vakúmsaltframleiðslu |
Aukaafurð framleiðslu á vakúmsalti úr saltvatni sem finnst í fjöllum Eftirlitsaðili eða eftirlitsyfirvald viðurkenni nauðsyn afurðarinnar |
2. Breytingar á tölulið 1 í kaflanum "Plöntuvarnarefni" í B-hluta "varnarefni" í viðauka II:
a) í stað færslu um "Etýlen" í töflu IV, "Önnur efni sem hefðbundin notkun er fyrir í lífrænum búskap", komi eftirfarandi:
Heiti |
Lýsing, kröfur um samsetningu og notkunarskilyrði |
Etýlen |
Þroskun banana, kívís og kakís; framköllun blómgunar á ananas Þörfin viðurkennd af eftirlitsaðila eða -yfirvöldum |
b) eftirfarandi tafla V. bætist við:
V. Önnur efni.
Heiti |
Lýsing, kröfur um samsetningu og notkunarskilyrði |
Kalsíumhýdroxíð |
Sveppaeyðir Aðeins í aldintrjám, þ.m.t. í gróðrarstöðvum, til varnar gegn nectria galligena |
5. gr.
Í samræmi við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1916/2005 verður eftirfarandi breyting á tölulið 1.2 í D-hluta, II. viðauka við reglugerð nr. 74/2002:
1.2. Vítamín, forvítamín og efnafræðilega vel skilgreind efni með samsvarandi verkun.
Einungis eftirtalin efni eru í þessum flokki:
Vítamín sem eru leyfð samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1831/2003:
- vítamín sem eru unnin úr náttúrulegum hráefnum í fóðurefnum,
- tilbúin vítamín sem eru eins og náttúruleg vítamín fyrir einmaga dýr,
- tilbúin A-, D- og E-vítamín sem eru eins og náttúruleg vítamín fyrir jórturdýr, að fengnu leyfi lögbærs yfirvalds aðildarríkisins.
6. gr.
Í samræmi við reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1294/2005 verða eftirfarandi breytingar á tölulið 4.8 í B-hluta, I. viðauka við reglugerð nr. 74/2002:
Þrátt fyrir ákvæði liðar 4.2 er heimilt að leyfa notkun takmarkaðs hlutfalls hefðbundins fóðurs úr landbúnaði ef bændur geta sýnt eftirlitsaðila eða -yfirvaldi aðildarríkisins fram á að þeir hafi ekki tök á að afla fóðurs eingöngu frá lífrænni framleiðslu. Mesta leyfilega hlutfall hefðbundins fóðurs á hverju 12 mánaða tímabili er:
a) fyrir grasbíta: 5% á tímabilinu 25. ágúst 2005 til 31. desember 2007,
b) fyrir aðrar tegundir:
- 15% á tímabilinu 25. ágúst 2005 til 31. desember 2007,
- 10% á tímabilinu 1. janúar 2008 til 31. desember 2009,
- 5% á tímabilinu 1. janúar 2010 til 31. desember 2011.
Þessar tölur skal reikna árlega sem hundraðshluta af þurrefni fóðurs úr landbúnaði. Mesta leyfilega hlutfall hefðbundins fóðurs í daglegum skammti, utan þess tíma sem dýr fara árlega milli bithaga, skal vera 25%, reiknað sem hundraðshluti þurrefnis.
7. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 7. janúar 2008.
Einar K. Guðfinnsson.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)