365/2008
Reglugerð um söfnun gagna um innflutning, geymslu og sölu á eldsneyti. - Brottfallin
1. gr.
Orkustofnun skal safna gögnum um orkulindir og aðrar jarðrænar auðlindir, nýtingu þeirra og orkubúskap landsmanna, varðveita þau og miðla upplýsingum til stjórnvalda og almennings.
2. gr.
Til að sinna hlutverki sínu samkvæmt 1. gr. er Orkustofnun heimilt að krefjast gagna sem varða nýtingu á jarðrænum auðlindum, orkuframleiðslu og orkunotkun, þ.m.t. gagna um innflutning, geymslu og sölu á jarðefnaeldsneyti. Skylt er þeim sem stunda atvinnurekstur er varðar framangreint að afhenda stofnuninni gögn samkvæmt reglugerð þessari.
3. gr.
Eftirtöldum gögnum ber að skila til Orkustofnunar:
- Sölutölum eftir notkunarflokkum, sem skilgreindir eru í 5. gr. Gera skal grein fyrir óvissu í tölum.
- Upplýsingum um birgðastöðu í upphafi og við lok árs.
- Upplýsingum um rýrnun: Gera skal grein fyrir þeirri rýrnun sem orðið hefur á birgðum á því ári sem tölurnar ná til.
4. gr.
Upplýsingar um sölutölur, birgðir og rýrnun skulu gefnar í tonnum.
Fyrir hverja eldsneytistegund skal jafnframt gefa upp eðlisþyngd í kílógrömmum á lítra, orkuinnihald í megajúlum á kílógramm, kolefnisinnihald sem hlutfall af massa og brennisteinsinnihald sem hlutfall af massa. Þetta skulu vera mæld gildi, ekki gildi gefin upp skv. stöðlum. Gildin skulu mæld fyrir hvern eldsneytisfarm sem berst til landsins. Uppgefið gildi til Orkustofnunar skal vera vegið meðaltal hverrar eldsneytistegundar.
5. gr.
Eftirfarandi eru þeir notkunarflokkar sem vísað er til í 3. gr. reglugerðar þessarar. Orkustofnun gefur út leiðbeiningar með nánari skýringum á flokkun eldsneytis:
- Flugvélabensín tekið hér á landi, innlend notkun
- Flugvélabensín tekið hér á landi, millilandanotkun
- Blýlaust bensín á bifreiðar
- Steinolía, samgöngur
- Steinolía, annað
- Þotueldsneyti tekið hér á landi, innlend notkun
- Þotueldsneyti tekið hér á landi, millilandanotkun
- Dísilolía á bifreiðar (frá söludælu)
- Dísilolía á tæki (frá bíl)
- Dísilolía, innlend fiskiskip
- Dísilolía, erlend fiskiskip
- Dísilolía, önnur skip, innlend notkun
- Dísilolía, önnur skip, millilandanotkun
- Dísilolía, húshitun og sundlaugar
- Dísilolía, steinefnaiðnaður
- Dísilolía, framleiðsla og vinnsla málma
- Dísilolía, matvæla- og drykkjarvöruiðnaður utan fiskimjölsiðnaðar
- Dísilolía, fiskimjölsiðnaður
- Dísilolía, efnaiðnaður
- Dísilolía, annar iðnaður
- Dísilolía, orkuvinnsla
- Dísilolía, annað
- Skipagasolía, innlend fiskiskip
- Skipagasolía, erlend fiskiskip
- Skipagasolía, önnur skip, innlend notkun
- Skipagasolía, önnur skip, millilandanotkun
- Skipagasolía, húshitun og sundlaugar
- Skipagasolía, steinefnaiðnaður
- Skipagasolía, framleiðsla og vinnsla málma
- Skipagasolía, matvæla- og drykkjarvöruiðnaður utan fiskimjölsiðnaðar
- Skipagasolía, fiskimjölsiðnaður
- Skipagasolía, efnaiðnaður
- Skipagasolía, annar iðnaður
- Skipagasolía, orkuvinnsla
- Skipagasolía, annað
- Flotadísilolía, innlend fiskiskip
- Flotadísilolía, erlend fiskiskip
- Flotadísilolía, önnur skip, innlend notkun
- Flotadísilolía, önnur skip, millilandanotkun
- Flotadísilolía, húshitun og sundlaugar
- Flotadísilolía, steinefnaiðnaður
- Flotadísilolía, framleiðsla og vinnsla málma
- Flotadísilolía, matvæla- og drykkjarvöruiðnaður utan fiskimjölsiðnaðar
- Flotadísilolía, fiskimjölsiðnaður
- Flotadísilolía, efnaiðnaður
- Flotadísilolía, annar iðnaður
- Flotadísilolía, orkuvinnsla
- Flotadísilolía, annað
- Svartolía tekin hér á landi, innlend fiskiskip
- Svartolía, erlend fiskiskip
- Svartolía, önnur skip, innlend notkun
- Svartolía, önnur skip, millilandanotkun
- Svartolía, húshitun og sundlaugar
- Svartolía, steinefnaiðnaður
- Svartolía, framleiðsla og vinnsla málma
- Svartolía, matvæla og drykkjarvöruiðnaður utan fiskimjölsiðnaðar
- Svartolía, fiskimjölsiðnaður
- Svartolía, efnaiðnaður
- Svartolía, annar iðnaður
- Svartolía, orkuvinnsla
- Svartolía, annað
- Kol, iðnaður
- Kol, málmvinnsla
- Koks, iðnaður
- Koks, málmvinnsla
- Kol, annað
- Koks, annað
- Gas, heimili
- Gas, landbúnaður
- Gas, iðnaður
- Gas, framleiðsla og vinnsla málma
- Gas, þjónusta
- Gas, annað
- Metan á bifreiðar
- Metan, orkuvinnsla
- Metan, annað
- Vetni á bifreiðar
- Vetni, annað
- Úrgangsolía
- Skautleifar
- Timburkurl
6. gr.
Gögnum skal skilað til Orkustofnunar á því formi sem stofnunin ákveður, fyrir 15. mars ár hvert vegna næstliðins almanaksárs. Sé gögnum ekki skilað innan tilgreinds frests er Orkustofnun heimilt að leggja dagsektir á viðkomandi fyrirtæki eða stofnun. Dagsektir geta numið 10-100 þús. kr. á dag. Ákvörðun um dagsektir skal tilkynnt bréflega á sannanlegan hátt þeim sem hún beinist að. Ákvarðanir um að leggja á dagsektir eru aðfararhæfar. Innheimtar dagsektir skulu renna í ríkissjóð að frádregnum kostnaði við innheimtuna.
7. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5. mgr. 2. gr. laga nr. 87/2003, sbr. lög nr. 48/2007, öðlast þegar gildi.
Iðnaðarráðuneytinu, 28. mars 2008.
Össur Skarphéðinsson.
Kristján Skarphéðinsson.