1. gr.
Þar sem takmarkaðar innfjarðarækjuveiðar voru stundaðar á Arnarfirði og engar innfjarðarækjuveiðar voru stundaðar í Ísafjarðardjúpi, Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfandaflóa, Axarfirði, Eldeyjarsvæði og Norðurfjörðum Breiðafjarðar á fiskveiðiárinu 2007/2008, skal á fiskveiðiárinu 2008/2009 úthluta aflamarki sem nemur samtals 1.107 þorskígildislestum til báta, sem hafa hlutdeild í innfjarðarækju á áðurgreindum svæðum.
Við útreikning uppbóta er miðað við, að skerðingin, verði ekki meiri en 30% frá meðalafla rækjuvertíðanna 1996/1997-2005/2006 að frádregnum afla fiskveiðiársins 2007/2008. Verðmætastuðullinn fyrir rækju er 0,52, miðað við þorskígildi, og koma 125 lestir í hlut báta frá Arnarfirði, 373 lestir í hlut báta við Ísafjarðardjúp, 148 lestir í hlut báta við Húnaflóa, 153 lestir í hlut báta við Skagafjörð, 70 lestir í hlut báta við Skjálfandaflóa, 201 lest í hlut báta við Axarfjörð, 23 lestir í hlut báta á Eldeyjarsvæði og 14 lestir í hlut báts í Norðurfjörðum Breiðafjarðar.
2. gr.
Þar sem engar hörpudisksveiðar eru stundaðar í Arnarfirði, Húnaflóa, Breiðafirði og Hvalfirði skal á fiskveiðiárinu 2008/2009 úthluta aflamarki sem samtals nemur 983 þorskígildistonnum til báta, sem aflahlutdeild hafa í hörpudiski á áðurgreindum svæðum.
Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla áranna 1998 til 2007. Verðmætastuðullinn fyrir hörpudisk er 0,32, miðað við þorskígildi, og koma 7 lestir í hlut báta frá Arnarfirði, 33 lestir í hlut báta við Húnaflóa, 919 lestir í hlut báta við Breiðafjörð og 24 lestir í hlut báta við Hvalfjörð.
3. gr.
Úthluta skal uppbótum til einstakra báta á grundvelli þeirrar aflahlutdeildar, sem þeir hafa í rækju og skel á viðkomandi svæði og miðast við aflahlutdeild eins og hún er 1. ágúst 2008. Uppbæturnar skulu skiptast á eftirgreindar tegundir: Þorsk, ýsu, ufsa og steinbít í hlutfalli við leyfilegt heildarmagn í þessum tegundum.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 10. gr. laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. september 2008.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 24. júlí 2008.
Einar K. Guðfinnsson.
Steinar I. Matthíasson.