1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla, I viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 100/2007 frá 29. september 2007 öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:
a) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 242/2007 frá 6. mars 2007 um að leyfa endó-1,4-beta-xýlanasa EC 3.2.1.8 (Belfeed B1100MP og Belfeed B1100ML) sem aukefni í fóðri. |
b) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 243/2007 frá 6. mars 2007 um að leyfa 3-fýtasa (Natuphos) sem aukefni í fóðri. |
c) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 244/2007 frá 7. mars 2007 um að leyfa L-histidín mónóhýdróklóríð, einvatnað, sem aukefni í fóðri. |
d) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 226/2007 frá 1. mars 2007 um að leyfa Saccharomyces cerevisiae CNCM I-1077 (Levucell SC20 og Levucell SC10 ME) sem aukefni í fóðri. |
e) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 184/2007 frá 20. febrúar 2007 um að leyfa kalíumdíformat (Formi LHS) sem aukefni í fóðri. |
f) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 186/2007 frá 21. febrúar 2007 um leyfi fyrir nýrri notkun á Saccharomyces cerevisiae (Biosaf SC 47) sem aukefni í fóðri. |
2. gr.
Um aukefni samkvæmt ofangreindum reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) vísast að öðru leyti til 13. gr. reglugerðar nr. 340/2001 og 3. viðauka sömu reglugerðar.
3. gr.
Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (EB) eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 20. ágúst 2008.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)