1. gr.
Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2005, frá 30. september 2005, skal reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2254/2004 öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka EES-samningsins og öðrum ákvæðum hans.
2. gr.
Reglugerð Evrópusambandsins er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Með innleiðingu reglugerðar Evrópusambandsins nr. 2254/2004, breytast eftirfarandi ákvæði í B-hluta, I. viðauka reglugerðar nr. 74/2002, um lífræna landbúnaðarframleiðslu og merkingar, þannig að:
a) |
Í stað fyrsta og annars undirliðar í lið 3.4. komi eftirfarandi: |
||
"- |
Kjúklingar til framleiðslu eggja og alifuglar til kjötframleiðslu verða að vera yngri en þriggja daga." |
||
b) |
Eftirfarandi komi í stað textans í lið 3.5.: |
||
"3.5. |
Afla ber heimildar fyrirfram til þessarar undanþágu frá eftirlitsyfirvaldi eða -aðila." |
||
c) |
Eftirfarandi komi í stað textans í lið 3.6.: |
||
"3.6. |
Þriðja heimilaða undanþága er að eftirlitsyfirvald eða -aðili skal veita leyfi til að endurnýja eða byggja upp aftur hjörð eða bústofn þegar lífrænt alin dýr eru ekki á boðstólum og í eftirfarandi tilvikum: |
||
a) |
hlutfallslega mörg dýr hafa drepist vegna kringumstæðna sem rekja má til heilbrigðisvanda eða stóráfalla, |
||
b) |
kjúklingar til framleiðslu eggja og alifuglar til kjötframleiðslu yngri en þriggja daga, |
||
c) |
grísir til undaneldis skulu aldir samkvæmt ákvæðum þessarar reglugerðar þegar eftir að þeir eru vandir undan og skulu þeir vega minna en 35 kg. |
||
Tilvik í c-lið er leyft á aðlögunartímabili sem lýkur 31. júlí 2006." |
|||
d) |
Eftirfarandi komi í stað textans í lið 3.7.: |
||
"3.7. |
Þrátt fyrir ákvæðin, sem mælt er fyrir um í liðum 3.4. og 3.6., má taka kjúklinga sem ekki eru lífrænt aldir og ekki eldri en 18 vikna og nota til framleiðslu eggja í lífrænni framleiðslueiningu þegar lífrænt aldar unghænur eru ekki á boðstólum, að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum: |
||
- |
lögbær yfirvöld hafa fyrirfram veitt leyfi sitt og |
||
- |
frá 31. desember 2005 skulu ákvæði, sem mælt er fyrir í 4. lið (fóðrun) og 5. lið (sjúkdómavarnir og dýralæknismeðferð) í þessum I. viðauka gilda um kjúklinga sem ekki hafa verið lífrænt aldir og taka á inn í lífrænar framleiðslueiningar." |
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Landbúnaðarráðuneytinu, 16. ágúst 2006.
F. h. r.
Hákon Sigurgrímsson.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)