1. gr.
Ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2003/804/EB um heilbrigðisskilyrði dýra og útgáfu heilbrigðisvottorða vegna innflutnings lindýra ásamt hrognum þeirra og sviljum til frekari ræktunar, eldis, umlagningar eða neyslu, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka samningsins, bókun um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans.
2. gr.
Ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2003/804/EB er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.
3. gr.
Fiskistofa fer með framkvæmd eftirlits sem kveðið er á um í þessari reglugerð og afmarkast nánar af gildissviði laga nr. 55/1998 um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða og laga nr. 33/2002 um eldi nytjastofna sjávar.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. og 31. gr. laga nr. 55/1998 um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegsráðuneytinu, 1. ágúst 2006.
F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Guðríður Margrét Kristjánsdóttir.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)