1. gr.
Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 136/2002 frá 27. september 2002 gildir eftirtalin EB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn um samkeppni, bókun I um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1400/2002 frá 31. júlí 2002 um beitingu 3. mgr. 81. gr. sáttmálans gagnvart tilteknum flokkum lóðréttra samninga og samstilltra aðgerða á sviði vélknúinna ökutækja.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1400/2002 hefur áður verið birt sem fylgiskjal með reglugerð nr. 217/2003 sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda 2003, bls. 594-606.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, öðlast þegar gildi samanber aðlögunarákvæði 10. gr. og 2. tl. 12. gr. reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1400/2002.
Með reglugerð þessari fellur úr gildi 2. gr. q reglugerðar nr. 594/1993 um efnislegar samkeppnisreglur í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. reglugerð nr. 217/2003.
Viðskiptaráðuneytinu, 18. september 2006.
F. h. r.
Kristján Skarphéðinsson.
Jónína S. Lárusdóttir.