Eftirfarandi breytingar verða á kafla A-1 í viðauka II reglugerðarinnar:
a. Við aukaefnaflokkinn 4.1.1 bætist eftirfarandi efni:
Askorbinsýra og askorböt (E 300-302) | ü | |
Sítrónusýra (E 330) | ï | |
ý GFH | ||
þ |
b. Við aukaefnaflokkinn 4.1.3 bætist eftirfarandi efni:
Askorbinsýra og askorböt (E 300-302) | ü | |
Sítrónusýra (E 330) | ï | |
ý GFH, Aðeins í flysjaðar | ||
ï kartöflur | ||
þ |
c. Eftirfarandi efni fellur brott úr aukaefnaflokknum 9.4.1:
Nítröt (E 251-252) | (Alls 250 mg/kg í saltaðar, | |
reyktar eða niðurlagðar kjötvörur) |
2. tölul. 2. mgr. 18 gr. reglugerðarinnar hljóðar svo:
3. tölul. tilskipunar 65/66/EBE um sérstök skilyrði um hreinleika rotvarnarefna sem heimilt er að nota í matvæli með síðari breytingum, 16. tölul. tilskipun 78/663/EBE um sérstök hreinleikaskilyrði fyrir ýru-, bindi-, þykkingar- og hleypiefni til notkunar í matvælum með síðari breytingum, 17. tölul. tilskipun 78/664/EBE um sérstök hreinleikaskilyrði fyrir þráavarnarefni sem heimilt er að nota í matvæli með síðari breytingum, 29. tölul. tilskipunar 81/712/EBE um greiningaraðferðir innan bandalagsins til staðfestingar á að tiltekin aukefni sem notuð eru í matvælum fullnægi skilyrðum um hreinleika, 46. tölul. tilskipunar 95/31/EB um hreinleikaskilyrði fyrir sætuefni sem ætluð eru til notkunar í matvælum með breytingum 98/66/EB, 2000/51/EB og 2001/52/EB, tilskipun 95/45/EB um hreinleikaskilyrði fyrir litarefni, með breytingum 99/75/EB og 2001/50/EB og tilskipun 2002/82/EB um hreinleikaskilyrði fyrir aukefni önnur en litar- og sætuefni.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli samanber og lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum. Reglugerðin er sett með hliðsjón af ákvæðum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka (tilskipun nr. 95/2/EB um aukefni í matvælum önnur en litarefni og sætuefni). Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.