Á tímabilinu 15. maí til 20. júní 2004, er skipum sem eru 105 brl. að stærð eða minni og skráð eru frá höfnum á norðanverðu Snæfellsnesi og gerð þaðan út heimilt að stunda rækjuveiðar á Breiðafirði, sunnan 65°10´N og utan línu, sem dregin er réttvísandi norður frá Krossnessvita. Við veiðar á þessu svæði skal varpa skipanna búinn seiðaskilju, sbr. reglugerð nr. 304 3. maí 1999. Afli sem fenginn er við þessar veiðar reiknast til úthafsrækjuafla skipsins.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.