Fiskistofa skal á fiskveiðiárinu 2003/2004 úthluta 1.000 lestum af ýsu, 1.000 lestum af steinbít og 300 lestum af ufsa, miðað við óslægðan afla, til krókaaflamarksbáta samkvæmt reikniforsendum reglugerðar nr. 283, 9. apríl 2002, um úthlutun afaheimilda á fiskveiðiárinu 2001/2002, skv. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
Aðeins skal úthluta þeim bátum sem uppfylltu skilyrði reglugerðar nr. 283, 9. apríl 2002, til úthlutunar, enda séu þeir enn skráðir frá sömu sjávarbyggð við útgáfu reglugerðar þessarar. Hafi eigandi báts, sem úthlutun hlaut á fiskveiðiárinu 2002/2003, skv. reglugerð nr. 600, 9. ágúst 2002, selt þann bát sinn er heimilt að úthluta öðrum báti í hans eigu, sem skráður er í sömu sjávarbyggð, þeim aflaheimildum, sem hinn seldi bátur hefði annars fengið, enda hafi allar aflaheimildir verið fluttar milli bátanna.
Engum báti skal úthlutað meiri aflaheimildum samkvæmt reglugerð þessari en sem nemur því magni, sem viðkomandi bátur hefur landað í hlutaðeigandi sjávarbyggð á tímabilinu 1. ágúst 2002 til 31. júlí 2003.
Miða skal við þorskígildi samkvæmt stuðlum reglugerðar nr. 603/2002 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2002/2003. Um afla skal leggja til grundvallar upplýsingar úr aflaupplýsingakerfinu Lóðs.
Reglugerð þessi er gefin út á grundvelli 3. mgr. 9. gr. laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og komi til framkvæmda 1. september 2003.