137/2003
Reglugerð um friðun hrygningarþorsks og skarkola á vetrarvertíð 2003. - Brottfallin
Austursvæði
(Stokksnes að 19° V).
1. gr.
Frá og með 8. apríl til og með 16. apríl eru allar veiðar óheimilar á svæði fyrir Suðurlandi, sem að austan markast af línu sem dregin er réttvísandi 90° frá Stokksnesi og að vestan af 19°00´ V. Að utan markast svæðið af línu sem dregin er í 4ra sjómílna fjarlægð frá fjörumarki meginlandsins.
Frá og með 17. apríl til kl. 10.00 28. apríl markast ytri mörk svæðisins vestur um frá Stokksnesi af línu sem dregin er í 12 sjómílna fjarlægð frá viðmiðunarlínu í punkt á 17°00´V. Þaðan í punkt 63°15´N og 17°00´V og síðan í punkt 63°05´N og 17°40´V og þaðan í réttvísandi 270° að 19°00´V.
Vestursvæði
(19° V að Skor).
2. gr.
Frá og með 1. apríl til og með 11. apríl eru allar veiðar óheimilar á svæði fyrir Suður- og Vesturlandi á svæði sem að austan markast af 19°00´V og að vestan af línu sem dregin er réttvísandi 250° frá Skorarvita.
Að utan markast svæðið frá 19°00 V vestur um af línu sem dregin er í 4ra sjómílna fjarlægð frá fjörumarki meginlandsins að punkti 63°33´00 N og 20°27´00 V og þaðan í punkt 63°33´00 N og 20°50´00 V og þaðan í punkt 63°47´85 N - 21°16´00 V og þaðan af línu sem dregin er í 4ra sjómílna fjarlægð frá fjörumarki meginlandsins að Garðskaga.
Þaðan markast ytri mörk svæðisins af línu, sem dregin er um punkta í 4ra sjómílna fjarlægð í tilgreindar réttvísandi stefnur frá eftirgreindum stöðum:
1. 270° frá Hjörsey
2. 180° frá Malarrifsvita
3. 270° frá Tröllakirkju
4. 270° frá Öndverðarnesvita
5. 360° frá Öndverðarnesvita
6. 360° frá Töskuvita við Rif
7. 250° frá Skorarvita
Frá og með 12. apríl til kl. 10.00 21. apríl markast ytri mörk svæðisins af línu sem dregin er vestur um milli eftirgreinda punkta:
1. 63°05´00 N - 19°00´00 V
2. 63°05´38 N - 24°18´54 V
3. 63°35´06 N - 23°13´06 V
4. 63°36´72 N - 23°22´84 V
5. 63°39´65 N - 23°28´55 V
6. 64°43´72 N - 24°12´83 V
7. 64°43´72 N - 24°25´57 V
og síðan í punkt í 24,3 sjómílna fjarlægð 250° réttvísandi frá Skor.
Önnur friðunarsvæði þorsks.
3. gr.
Frá kl. 10.00 15. apríl til kl. 10.00 30. apríl eru allar veiðar óheimilar á eftirgreindum svæðum:
A. |
Á Ísafjarðardjúpi innan línu sem dregin er frá Galtarvita í Straumnesvita. |
B. |
Frá Hornbjargsvita austur um að Stokksnesi innan 3ja sjómílna frá fjörumarki meginlandsins. |
C. |
Innan 3ja sjómílna frá fjörumarki Grímseyjar. |
Skarkolasvæði.
4. gr.
Auk ofangreindra veiðibanna eru á tímabilinu 1. til 30. apríl að báðum dögum meðtöldum allar veiðar með botnvörpu, dragnót og kolanetum bannaðar á eftirgreindum svæðum:
A.Selvogsbanki:
1. 63°40´00 N - 21°00´00 V
2. 63°31´00 N - 20°10´00 V
3. 63°22´00 N - 20°30´00 V
4. 63°20´00 N - 20°50´00 V
B.
Hafnarleir:
1. 64°05´00 N - 23°15´00 V
2. 64°05´00 N - 22°54´00 V
3. 63°50´00 N - 22°53´00 V
4. 63°50´00 N - 22°57´00 V
5. 64°00´00 N - 23°20´00 V
C.
Breiðafjörður:
1. 65°16´00 N - 23°27´00 V
2. 65°10´00 N - 23°27´00 V
3. 65°00´00 N - 24°20´00 V
4. 65°05´00 N - 24°37´00 V
5. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1.-4. gr. eru veiðar á grásleppu, innfjarðarækju, hörpudiski, ígulkerum, beitukóngi og kúfiski heimilar þeim sem tilskilin leyfi hafa til þeirra veiða innan svæðisins. Ennfremur veiðar sem leyfðar kunna að verða á grundvelli 13. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
6. gr.
Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
7. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegsráðuneytinu, 4. mars 2003.
Árni M. Mathiesen.
Jón B. Jónasson.