Sjávarútvegsráðuneyti

599/2002

Reglugerð um úthlutun á fiskveiðiárinu 2002/2003 skv. 9. gr. a í lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Úthluta skal á fiskveiðiárinu 2002/2003 3.000 lestum af þorski, miðað við óslægðan fisk, til báta sem höfðu aflahlutdeild 1. desember 1998 og voru þann dag minni en 200 brúttótonn, enda hafi þeir landað þorskafla á fiskveiðiárinu 1996/1997 eða 1997/1998. Auk þess er heimilt að úthluta allt að 60 lestum samtals af þorski til báta, sem komu í stað annarra báta á tímabilinu 1. september 1997 til 17. mars 1999, enda sé að öðru leyti fullnægt skilyrðum settum í 9. gr. laga a. í lögum nr. 38/1990.


2. gr.

Úthluta skal til einstakra báta hlutfallslega miðað við heildaraflamark þeirra í þorskígildum talið.

Við útreikning á úhlutun skv. 1. gr. skal miða við aflahlutdeildarstöðu báta eins og hún var 1. desember 1998, úthlutað heildaraflamark fiskveiðiársins 1998/1999 og verðmætastuðla á því fiskveiðiári, sbr. 11. gr. reglugerðar nr. 448/1998, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 1998/1999.


3. gr.

Við úthlutun skv. 1. gr. skal þorskaflamark einstakra báta ekki aukast um meira en 100%, miðað við úthlutað aflamark í upphafi fiskveiðiárs 2002/2003 og enginn bátur hljóta hærri úthlutun en 10 lestir miðað við óslægðan fisk. Úthlutun þessi skal aldrei leiða til þess að heildaraflaheimildir einstakra skipa í upphafi fiskveiðiársins 2002/2003, verði meiri en 450 þorskígildislestir samtals.


4. gr.

Verði breytingar á skipakosti útgerðar er henni heimilt að flytja rétt til úthlutunar yfir á annan bát í hennar eigu.


5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi og komi til framkvæmda 1. september 2002.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 9. ágúst 2002.

Árni M. Mathiesen.
Jón B. Jónasson.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica