Ákvæði reglugerðar þessarar taka til veiða á kolmunna á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), í fiskveiðilögsögu Íslands og lögsögum þeirra landa, þar sem íslensk skip hafa rétt til veiða samkvæmt samningum.
Á árinu 2002 er íslenskum skipum heimilt að veiða 282 þús. lestir af kolmunna og skal Fiskistofa skipta því heildarmagni milli þeirra á grundvelli aflahlutdeildar sbr. 3. gr.
Frá og með 18. mars 2002 er íslenskum skipum óheimilt að stunda veiðar á kolmunna þar til þau hafa fengið til þess aflamark í kolmunna, sem Fiskistofa úthlutar.
Hverju íslensku fiskiskipi skal úthlutað aflahlutdeild í kolmunna og skal hún reiknuð í hlutfalli við þrjú bestu veiðiár þess almanaksárin 1996-2001. Við útreikning á aflahlutdeild hvers fiskiskips skal leggja til grundvallar upplýsingar úr aflaupplýsingakerfinu Lóðs. Hafi skip sem aflareynsla er bundin við horfið úr rekstri þegar úthlutun á sér stað, er síðasta eiganda skipsins áður en það hvarf úr rekstri heimilt að ákveða á hvaða skip sú aflahlutdeild skuli skráð.
Fiskistofa skal við útgáfu reglugerðar þessarar úthluta 80% af leyfilegum heildarafla, sbr. 2. mgr. 1. gr. Jafnframt skulu útgerðum skipanna kynntar forsendur úthlutunarinnar og skulu þær hafa frest til 5. apríl 2002 til að koma athugasemdum sínum á framfæri við Fiskistofu. Fiskistofa skal hafa lokið endanlegri úthlutun aflahlutdeilda og aflamarks eigi síðar en 1. maí 2002.
Um veiðar á kolmunna gilda að öðru leyti ákvæði reglugerða um togveiðar á kolmunna og um veiðieftirlit á samningsvæði NEAFC.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum III. kafla laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og ákvæðum laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og ákvæðum laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.