Frá og með 22. febrúar 2002 til og með 30. apríl 2002, eru allar veiðar með botn- og flotvörpu bannaðar á svæði út af Faxaflóa, sem að sunnan markast af línu sem dregin er réttvísandi 270° frá Sandgerðisvita. Að vestan markast svæðið af 23°42V og að norðan af 64°20N.
Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.