Hólaskóli er rannsókna- og menntastofnun sem starfar eftir lögum um búnaðarfræðslu, nr. 57/1999. Hólaskóli hefur höfuðaðsetur á Hólum í Hjaltadal, annast þar staðarhald og varðveitir menningararf staðarins.
Hólaskóli er mennta- og rannsóknastofnun er býður nemendum hagnýtt nám á sviði hrossaræktar, hestamennsku, fiskeldis og ferðaþjónustu í dreifbýli. Meginmarkmið Hólaskóla er að styðja við nýsköpun, framþróun og vöxt í þessum atvinnugreinum þannig að þær geti orðið mikilvægar í atvinnulífi dreifbýlis. Þetta gerir Hólaskóli með öflugu mennta- og rannsóknastarfi, sem býr einstaklinga undir þátttöku í atvinnulífinu, sjálfstæð vísindastörf eða frekara háskólanám.
Hólaskóla er heimilt að veita endurmenntun í þeim fræðigreinum sem kenndar eru við skólann. Þá skal skólinn veita almenningi fræðslu og þjónustu í krafti þekkingar sinnar.
Kennsla á vegum Hólaskóla getur verið á framhaldsskólastigi og háskólastigi sbr. 34. gr. laga um búnaðarfræðslu, nr. 57/1999. Kennslan fer fram í deildum. Fyrirkomulag kennslu innan hverrar deildar getur verið í formi námsbrauta, sjálfstæðra námskeiða eða í formi endurmenntunar. Skólinn setur sérstakar reglur um form kennslunnar, tilhögun námsins, inntökuskilyrði og próf sem staðfestar skulu af landbúnaðarráðherra. Tryggt skal að nám til B.S. gráðu sé viðurkennt af háskólum sem veita sambærilega prófgráðu, sbr. 4. gr.
Kennsla á framhaldsskólastigi og háskólastigi skal vera í samræmi við lög og reglur sem um slíka kennslu gilda, sbr. lög um framhaldsskóla, nr. 80/1996 og lög um háskóla, nr. 136/1997.
Í Hólaskóla skal fara fram reglulegt sjálfsmat á innra starfi skólans með stöðugar umbætur í huga í samræmi við reglur nr. 331/1999, um gæðaeftirlit með háskólakennslu. Jafnframt skal undirbúningur námsins og veiting prófgráðu fara fram að höfðu samráði við viðurkenndan háskóla.
Við Hólaskóla starfa þrjár deildir; fiskeldisdeild, ferðamáladeild og hrossaræktardeild. Landbúnaðarráðherra getur heimilað stofnun fleiri deilda eða rannsóknastofnana á vegum skólans. Deildirnar skulu hafa með sér náið samstarf, þar á meðal samnýtingu kennslutækja, starfskrafta og aðstöðu. Deildirnar geta haft náið samstarf við aðrar háskólastofnanir um uppbyggingu námsins kennslunnar og rannsókna.
Við fiskeldisdeild fer fram kennsla og rannsóknir á sviði fiskeldis, vatnalíffræði og fiskalíffræði. Að loknu eins árs námi, sem er á framhaldsskólastigi, útskrifast nemendur sem fiskeldisfræðingar. Prófgráðan B.S. í fiskeldisfræði er veitt að loknu 90 eða 120 eininga háskólanámi. Styttra námi á háskólastigi lýkur með diploma í fiskeldisfræðum.
Við ferðamáladeild fer fram kennsla og rannsóknir á sviði ferðamála, með áherslu á málefni dreifbýlis, menningu og náttúru Íslands. Prófgráðan B.S. í ferðamálafræði er veitt að loknu 90 eða 120 eininga háskólanámi. Styttra námi á háskólastigi lýkur með diploma í ferðamálafræðum dreifbýlis.
Við hrossaræktardeild fer fram kennsla og rannsóknir í hestamennsku og hrossarækt. Að loknu ein árs námi, sem er á framhaldsskólastigi, útskrifast nemendur sem hestafræðingar og leiðbeinendur. Prófgráðan B.S. í hrossarækt er veitt að loknu 90 eða 120 eininga háskólanámi. Styttra námi á háskólastigi lýkur með diploma í búnaðarfræðum. Eftir eitt ár á háskólastigi útskrifast nemendur sem tamningamenn og eftir tvö ár sem reiðkennarar.
Hólaskóli sinnir endurmenntun á vettvangi fræða sem kennd eru í deildum skólans. Hver deild skipuleggur endurmenntun á sínu fagsviði og ber ábyrgð á henni.
Stjórn Hólaskóla er falin skólanefnd og skólameistara. Skólanefnd er ráðgefandi um skipulag og áherslur, kennslu, rannsóknir og önnur verkefni skólans.
Skólameistari er yfirmaður stjórnsýslu skólans og ber ábyrgð á starfsemi skólans, sbr. 30. gr. laga um búnaðarfræðslu, nr. 57/1999. Skólameistari ræður kennara og annað starfsfólk stofnunarinnar.
Innan skólans starfar deildaráð sem sinnir daglegum rekstri skólans og samræmir starf deilda. Í deildaráði sitja skólameistari aðstoðarskólameistari, deildarstjórar deilda og fjármálastjóri. Hverri deild stýra deildarstjórar sem bera ábyrgð á faglegum og fjárhagslegum þáttum deildarinnar.
Kennarar og aðrir sérfræðingar skólans skulu hafa lokið háskólaprófi eða hafa hliðstæða menntun eða reynslu á sínu sviði. Þeir skulu auk kennslu vinna að rannsóknum og þróunarvinnu í þágu skólans. Um hæfni og rannsóknir kennara skal að öðru leyti miða við löggjöf og reglur sem gilda á háskólastigi.
Skólinn setur sérstakar reglur um atriði sem fjallað er um í þessari grein sem staðfestar skulu af landbúnaðarráðherra.
Hver sá sem staðist hefur stúdentspróf getur sótt um inngöngu í háskólanám við Hólaskóla gegn greiðslu skrásetningargjalds. Heimilt er að leyfa skrásetningu nemenda í háskólanám, sem lokið hafa öðrum prófum en stúdentsprófi eða búa yfir hliðstæðum þroska og þekkingu og stúdentsprófið veitir, ef viðkomandi deild telur að um sé að ræða fullnægjandi undirbúning undir nám við deildina.
Um inngöngu í annað nám við Hólaskóla fer eftir reglum sem skólinn setur.
Inntaka nemenda er í höndum deildaráðs og getur það að fengnu samþykki landbúnaðarráðherra takmarkað fjölda þeirra sem hefja nám við deildir eða námsbrautir skólans.
Hólaskóli getur stofnað rannsóknasjóði, sbr. 18. gr. laga um búnaðarfræðslu, nr. 57/1999. Rannsóknasjóðir standa fyrir rannsóknastarfsemi á vegum skólans. Heimilt er að leita eftir styrkjum og þátttöku annarra aðila í slíkri starfsemi. Rannsóknasjóðir þessir starfa sem sjálfseignarstofnanir og er heimilt að fá aðila utan skólans til þátttöku í stjórn þeirra og fulltrúaráðum. Skipulagsskrár rannsóknasjóða skulu staðfestar af dómsmálaráðherra.
Við Hólaskóla er rannsókna- og sérfræðibókasafn sem tengist fræðisviðum skólans. Tilgangur safnsins er að veita nemendum og kennurum skólans og öðrum lánþegum safnsins, sérhæfða þjónustu vegna náms og rannsókna. Við Hólaskóla skal kappkostað að hafa greiðan aðgang að gagnasöfnum hérlendis og erlendis.
Hólaskóli getur stofnað eða tekið þátt í sjálfseignarstofnunum eða sjálfstæðum rekstrareiningum, sbr. 18. gr. og 2. mgr. 36. gr. laga um búnaðarfræðslu, nr. 57/1999, í því skyni að efla starf skólans, enda samræmist tilgangur þessarar starfsemi meginmarkmiðum Hólaskóla, sbr. 1. gr. þessarar reglugerðar.
Fjárhag og reikningshald skólans skal aðgreina eftir því sem við á, frá einstökum stofnunum, rekstrareiningum eða viðfangsefnum, þannig að yfirsýn fáist yfir einstaka þætti í rekstri skólans.
Skólameistari skal árlega boða til sérstaks ársfundar skólans og stofnana á hans vegum, þar sem gerð er grein fyrir starfsemi og fjárhagslegri útkomu næstliðins árs og fyrirliggjandi áætlanir um líðandi og næstu ár kynntar. Ársfundur skólans og stofnana hans getur eftir atvikum verið hluti af árlegum skólaslitum og útskrift nemenda eða sjálfstæður fundur.
Til ársfundar skal boðið fulltrúum landbúnaðarráðuneytis, skólanefnd, helstu hagsmunaaðilum og stjórnum og fulltrúaráðum stofnana skólans.
Reglugerð þessi er sett skv. 37. gr. laga um búnaðarfræðslu, nr. 57/1999 og öðlast þegar gildi.