1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 236/2024 frá 25. október 2024, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2041 frá 29. júlí 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 432/2012 að því er varðar heilsufullyrðingu sem varðar mónakólín K úr rauðum gerjuðum hrísgrjónum. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 21. nóvember 2024, bls. 518.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 29. nóvember 2024.
Bjarni Benediktsson.
Svava Pétursdóttir.