687/2024
Reglugerð um (23.) breytingu á reglugerð nr. 167/2015 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir, 89., 90. og 91. svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/981 frá 17. maí 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar flokkun efnisins prasikvantels með tilliti til hámarksgildis leifa í matvælum úr dýraríkinu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 87/2024, frá 26. apríl 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 41, frá 16. maí 2024, bls. 174.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2194 frá 19. október 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar flokkun efnisins ketóprófens með tilliti til hámarksgildis leifa í matvælum úr dýraríkinu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2024, frá 26. apríl 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 41, frá 16. maí 2024, bls. 180.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2203 frá 20. október 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar flokkun efnisins rafoxaníðs með tilliti til hámarksgildis leifa í matvælum úr dýraríkinu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2024, frá 26. apríl 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 41, frá 16. maí 2024, bls. 183.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 17. maí 2024.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.