683/2024
Reglugerð um (15.) breytingu á reglugerð nr. 674/2017 um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður svohljóðandi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1605 frá 22. maí 2023 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1069/2009 að því er varðar ákvörðun á endapunktum í framleiðsluferli tiltekins lífræns áburðar og tiltekinna jarðvegsbæta. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50/2024, frá 15. mars 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. apríl 2024, bls. 675.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 13. og 29. gr. a laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 17. maí 2024.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.