247/2024
Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 483/2020 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/627 um samræmt, hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu, sem eru ætlaðar til manneldis, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625.
1. gr.
1. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/627 frá 15. mars 2019 um samræmt, hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu, sem eru ætlaðar til manneldis, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 og um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2074/2005 að því er varðar opinbert eftirlit. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 3/2020, frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16, frá 12. mars 2020, bls. 259.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2108 frá 16. desember 2020 um breytingu á II. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/627 að því er varðar heilbrigðismerkið sem nota skal á tiltekið kjöt sem er ætlað til manneldis í Breska konungsríkinu að því er varðar Norður-Írland. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 239/2020, frá 30. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 70 frá 28. september 2023, bls. 106.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1709 frá 23. september 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/627 að því er varðar samræmt, hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 104/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 194.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2503 frá 19. desember 2022 um breytingu og leiðréttingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/627 að því er varðar hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits með lifandi samlokum, lagarafurðum eða í tengslum við útfjólubláa geislun. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 304/2023, frá 8. desember 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11, frá 2. febrúar 2024, bls. 223.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 12. febrúar 2024.
Katrín Jakobsdóttir.