130/2024
Reglugerð um (19.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 86.-87. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2809 frá 21. desember 2023 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum og kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2886 frá 18. desember 2023 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum og kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerðir sem nefndar eru í 1. gr. eru birtar á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 2/2024.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 15. janúar 2024.
Svandís Svavarsdóttir.