Matvælaráðuneyti

1237/2022

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 1205/2021 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1831/2003 um aukefni í fóðri.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/270 frá 23. febrúar 2022 um leiðréttingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/1410 um leyfi fyrir blöndu með Bacillus licheniformis DSM 28710 sem fóðuraukefni fyrir varphænur, aukategundir ali­fugla til varps, alifuglategundir til undaneldis og skrautfugla (leyfishafi er Huvepharma NV). Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 203/2022, frá 8. júlí 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 43, frá 11. ágúst 2022, bls. 23.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 26. október 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica