Prentað þann 29. mars 2025
463/2021
Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1882 um beitingu tiltekinna reglna um forvarnir og varnir gegn sjúkdómum fyrir flokka skráðra dýrasjúkdóma (dýraheilbrigði).
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 179/2020, frá 11. desember 2020, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1882 frá 3. desember 2018 um beitingu tiltekinna reglna um forvarnir og varnir gegn sjúkdómum fyrir flokka skráðra sjúkdóma og um að koma á skrá yfir dýrategundir og hópa dýrategunda sem skapa töluverða áhættu á útbreiðslu þessara skráðu sjúkdóma. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23, frá 31. mars 2021, bls. 377.
Reglugerðin skal gilda með þeim aðlögunum sem fram koma í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 179/2020.
2. gr.
Ákvæði reglugerðar þeirrar sem nefnd er í 1. gr. eru einungis innleidd að því marki er varðar dýraheilbrigði í samræmi við I. kafla I. viðauka EES-samningsins og gilda með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
3. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 54/1990, um innflutning dýra, lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lög nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lög nr. 71/2008, um fiskeldi.
4. gr.
Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 54/1990, um innflutning dýra, laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og laga nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, öll með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. apríl 2021.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.