Prentað þann 18. apríl 2025
724/2020
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 364/2020, um strandveiðar fiskveiðiárið 2019/2020.
1. gr.
Í stað orðanna "10.000 tonn af þorski" í 1. málsl. 2. gr. reglugerðarinnar komi 10.720 tonn af þorski og í stað "samtals 11.100 tonn af óslægðum botnfiski" komi 11.820 tonn af óslægðum botnfiski.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. júlí 2020,
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Arnór Snæbjörnsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.