1. gr.
18. töluliður töflunnar í 1. mgr. 2. gr. orðist svo:
Tegund | Leyfilegur heildarafli | Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) | Fiskistofa úthlutar á grundvelli aflahlutdeildar |
18. Íslensk sumargotssíld | 34.572 | 1.832 | 27.740 |
5000 tonn af sumargotssíld skulu flutt af fiskveiðiárinu 2019/2020 til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar á fiskveiðiárinu 2018/2019.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. júlí 2019.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Erna Jónsdóttir.
Guðmundur Jóhannesson.