Prentað þann 15. apríl 2025
619/2019
Reglugerð um úthlutun á opnum tollkvótum á frjóeggjum.
1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðauka IV A við 12. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. búvörulaga nr. 99/1993.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, vörumagn og verð- og magntoll:
Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur | Magntollur | |
Tollskrárnr.: | kg | % | kr./kg | ||
Frjóegg til útungunar: | |||||
0407.1100 | Af hænsnum af tegundinni Gallus domesticus | 01.07.19 - 30.06.20 | ótilgr. | 0 | 0 |
0407.1900 | Önnur | 01.07.19 - 30.06.20 | ótilgr. | 0 | 0 |
3. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
4. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. júní 2020.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. júlí 2019.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Elísabet Anna Jónsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.