1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. reglugerðarinnar:
a) | 1. málsl. 1. mgr. hljóðar svo: Magnliðir og fastagjald í gjaldskrá dreifiveitu fyrir flutning og dreifingu skulu greiddir niður um allt að 95%, en framleiðendur garðyrkjuafurða skulu greiða að lágmarki 5%. |
b) | 2. málsl. 1. mgr. fellur brott. |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í búvörulögum nr. 99/1993, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. janúar 2019.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Ása Þórhildur Þórðardóttir.