Prentað þann 9. apríl 2025
1012/2018
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 560/2010 um innflutning á djúpfrystu svínasæði.
1. gr.
Við 5. gr. reglugerðarinnar bætist ný 2. mgr. sem hljóðar svo:
Yfirdýralækni er heimilt að veita undanþágu frá skilyrði c-liðar undir sérstökum kringumstæðum, ef fagleg rök mæla með því. Hann setur jafnframt skilyrði fyrir innflutningnum sem byggja á áhættumati fyrir viðkomandi sjúkdóm og aðstæður.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 8. gr. laga nr. 54/1990 um innflutning dýra, ásamt síðari breytingum og 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt síðari breytingum, og tekur gildi við birtingu.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. nóvember 2018.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Elísabet Anna Jónsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.