Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

804/2018

Reglugerð um sérstaka úthlutun aflaheimilda til frístundaveiðiskipa. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun aflaheimilda samkvæmt 5. mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

2. gr.

Á fiskveiðiárinu 2018/2019 er heimilt er að úthluta allt að 400 tonnum af óslægðum botnfiski. Afla­heimildir sem ekki hefur verið úthlutað 31. ágúst 2019 falla niður.

Heimilt er gegn greiðslu að úthluta aflaheimildum á skip, sem leyfi hefur til frístundaveiða, sbr. 2. tl. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Fiskistofa annast úthlutun aflaheimilda samkvæmt reglugerð þessari og skal hverju skipi úthlutað að hámarki 10 tonnum á fiskveiðiárinu. Fiskistofa skal afgreiða umsóknir þannig að umsóknir sem berast fyrir kl. 16.00 hvern virkan dag skulu afgreiddar næsta virka dag. Berist umsókn eftir kl. 16.00 ber að telja hana til umsókna næsta dags. Ef aflaheimildir sem til ráðstöfunar eru nægja ekki til úthlutunar í samræmi við umsóknir þess dags skal umbeðið magn, sem fram kemur í umsókn­um, lækkað hlutfallslega.

Verð á aflaheimildum skal vera 80% af meðalverði í viðskiptum með aflamark, sem birt er á vef Fiskistofu, í lok dags daginn áður en viðskipti fara fram og skal það greitt Fiskistofu fyrir úthlutun. Hafi viðskipti með aflamark ekki átt sér stað síðasta virka dag áður en umsókn barst Fiskistofu skal miða við þann dag sem viðskipti fóru síðast fram fyrir þann tíma. Hafi gjald ekki verið greitt innan sjö daga frá því að umsókn barst Fiskistofu fellur réttur útgerðar til úthlutunar á grundvelli umsóknarinnar niður.

3. gr.

Aflaheimildir sem úthlutað er samkvæmt reglugerð þessari er einungis heimilt að nýta til frístunda­veiða. Heimilt er að flytja af frístundaveiðiskipi 50% af aflaheimildum sem úthlutað er sam­kvæmt reglugerð þessari og eru þær eingöngu framseljanlegar á milli frístundaveiðiskipa.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 400/2018, um sérstaka úthlutun afla­heimilda til frístundaveiðiskipa.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. ágúst 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica