416/2018
Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 270/2018, um hrognkelsaveiðar árið 2018. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
3. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Veiðisvæði og veiðitímabil.
Grásleppuveiðileyfi hvers báts skal gefið út til 44 samfelldra daga og skal bundið við ákveðið veiðisvæði og veiðitímabil eins og hér greinir:
- Faxaflói, frá línu réttvísandi vestur frá Garðskagavita 64°04,90 N 022°41,40 V að línu réttvísandi vestur frá Dritvíkurtanga (-flögum) 64°45,00 N 023°55,30 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 1. apríl til og með 24. júní.
- Breiðafjörður, svæði 1 frá línu réttvísandi vestur frá Dritvíkurtanga (-flögum) 64°45,00 N 023°55,30 V að línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum 65°30,20 N 024°32,10 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 1. apríl til og með 24. júní. Breiðafjörður, svæði 2 innan línu sem dregin er úr Krossnesvita vestan Grundarfjarðar 64°58,30 N 023°21,40 V í Lambanes vestan Vatnsfjarðar 65°29,30 N 023°12,60 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 20. maí til og með 12. ágúst.
- Vestfirðir, frá línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum 65°30,20 N 024°32,10 V að línu réttvísandi norður frá Horni (grunnpunktur 1) 66°27,40 N 022°24,30 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 1. apríl til og með 24. júní.
- Húnaflói, frá línu réttvísandi norður frá Horni (grunnpunktur 1) 66°27,40 N 022°24,30 V að línu réttvísandi norður frá Skagatá 66°07,20 N 020°05,90 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 20. mars til og með 12. júní.
- Norðurland, frá línu réttvísandi norður frá Skagatá 66°07,20 N 020°05,90 V að línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi (grunnpunktur 9) 66°22,70 N 014°31,90 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 20. mars til og með 12. júní.
- Austurland, frá línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi (grunnpunktur 9) 66°22,70 N 014°31,90 V að línu réttvísandi austur frá Hvítingum (grunnpunktur 18) 64°23,90 N 014°28,00 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 20. mars til og með 12. júní.
- Suðurland, frá línu réttvísandi austur frá Hvítingum (grunnpunktur 18) 64°23,90 N 014°28,00 V að línu réttvísandi vestur frá Garðskagavita 64°04,90 N 022°41,40 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 20. mars til og með 12. júní.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. apríl 2018.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jóhann Guðmundsson.