Prentað þann 8. apríl 2025
324/2018
Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/12 um snið og inntak umsókna og beiðna um ákvörðun á hámarksgildum leifa.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XIII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 223/2017 frá 15. desember 2017, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/12 frá 6. janúar 2017 um snið og inntak umsókna og beiðna um ákvörðun á hámarksgildum leifa í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 470/2009. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 1. febrúar 2018, bls. 343.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. mars 2018.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.