1. gr.
Liðurinn "Ísafjarðardjúp" í töflu í 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar hljóði svo:
Lestir | Skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) | Til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar | Veiðitímabil | |
Ísafjarðardjúp | 320 | 17 | 303 | 2017/2018 |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. mars 2018.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Arnór Snæbjörnsson.