I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um stuðningsgreiðslur sem falla undir rammasamning um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins dags. 19. febrúar 2016.
2. gr.
Orðskýringar.
Í reglugerð þessari hafa eftirtalin orð þá merkingu sem hér segir:
3. gr.
Handhafar greiðslna.
Greiðslur samkvæmt reglugerð þessari fá framleiðendur einir sem uppfylla eftirtalin skilyrði:
Hjón og einstaklingar í óvígðri sambúð, samkvæmt skráningu í Þjóðskrá, sem standa saman að búrekstri geta óskað eftir því við Matvælastofnun að greiðslum samkvæmt reglugerð þessari sé skipt jafnt á milli aðila. Þegar um fleiri sjálfstæða rekstraraðila er að ræða með aðskilinn búrekstur getur hver og einn þeirra verið handhafi greiðslna.
4. gr.
Röskun framleiðsluskilyrða.
Matvælastofnun er heimilt að ákveða að greiðslur samkvæmt samningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins dags. 19. febrúar 2016 verði greiddar til framleiðanda óháð framleiðslu á lögbýli eða garðyrkjubýli ef framleiðsluskilyrði hafa raskast tímabundið vegna áfalla sbr. 32. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Framleiðandi sem telur sig hafa orðið fyrir slíkum áföllum skal sækja um greiðslur samkvæmt greininni til Matvælastofnunar sem tekur ákvörðun um hvort skilyrði áðurnefndrar greinar laganna séu uppfyllt.
5. gr.
Opinbert eftirlit.
Ráðherra fer með yfirstjórn mála samkvæmt reglugerð þessari. Matvælastofnun fer með framkvæmd reglugerðarinnar og hefur eftirlit með að ákvæðum hennar sé fylgt.
6. gr.
Framkvæmdanefnd búvörusamninga.
Framkvæmdanefnd búvörusamninga skv. 31. gr. búvörulaga nr. 99/1993 er samráðsvettvangur samningsaðila rammasamnings um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins.
Framkvæmdanefnd búvörusamninga aflar upplýsinga um þróun framleiðslu og sölu á landbúnaðarafurðum, afurðaverð, inn- og útflutning landbúnaðarafurða, afkomuþróun í landbúnaði auk annarra upplýsinga sem hafa þýðingu fyrir framkvæmd samnings þessa, sem og framkvæmd samninga um starfsskilyrði nautgriparæktar, sauðfjárræktar og garðyrkju.
Á grundvelli upplýsinga skv. 2. mgr. getur framkvæmdanefnd búvörusamninga ákveðið að færa fjármuni á milli einstakra verkefna sem falla undir rammasamning um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins, sbr. töflu í viðauka I við samninginn. Heimilt er að færa árlega allt að 20% þeirrar fjárhæðar sem ætlaðar eru til hvers verkefnis. Nefndin skal tilkynna Matvælastofnun um tilfærslur sem taka eiga gildi um áramót eigi síðar en 1. desember árið á undan.
Matvælastofnun ráðstafar framlögum samkvæmt ákvörðun framkvæmdanefndar búvörusamninga.
II. KAFLI
Kynbótaverkefni.
7. gr.
Ráðstöfun framlaga.
Framlög til kynbótaverkefna skiptast annars vegar í framlög til ræktunarverkefna og einangrunarstöðva og hins vegar kynbótaskýrsluhalds. Jafnframt eru veitt framlög til stofnútsæðisræktunar á kartöflum í samræmi við ákvæði gildandi reglugerðar um kartöfluútsæði og úrvalsathugana garðplantna.
Bændasamtök Íslands ráðstafa framlögum samkvæmt 1. mgr. Samtökin skulu árlega skila yfirliti yfir ráðstöfun fjármunanna til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
III. KAFLI
Jarðræktarstyrkur og landgreiðslur.
8. gr.
Umsókn.
Matvælastofnun annast úthlutun jarðræktarstyrkja og landgreiðslna. Ár hvert auglýsir Matvælastofnun eftir umsækjendum um framlög. Umsóknum skal skila inn í rafrænt umsóknarkerfi Matvælastofnunar, eigi síðar en 20. október ár hvert vegna framkvæmda á yfirstandandi ári.
Skilyrði fyrir veitingu stuðnings skv. III. kafla eru fullnægjandi skil á skýrsluhaldi skv. 13. gr.
9. gr.
Jarðræktarstyrkur.
Framlögum skal varið til jarðræktar, þ.e. nýræktar og endurræktunar á túnum, kornræktar og ræktunar annarra fóðurjurta sem og útiræktunar á grænmeti og kartöflum. Uppskera er forsenda fyrir jarðræktarstyrk. Heimilt er að greiða stuðning vegna ágangs álfta og gæsa á ræktunarlöndum bænda.
Styrkhæf ræktun er ræktun grass, korntegunda til dýrafóðurs og manneldis, útiræktun grænmetis, ræktun olíujurta, þar með talin ræktun jurta til framleiðslu á lífdísel enda sé hratið nýtt til fóðurs, ræktun grænfóðurs til beitar og uppskeru á því ári sem uppskorið er. Beit búpenings telst vera uppskera sem og nýting kornhálms. Ræktun vetraryrkja sem sáð er um mitt sumar og endurræktun túna er tekin út á uppskeruári. Ekki telst styrkhæf ræktun ef kornrækt er eingöngu ætluð til að draga að gæsir til skotveiði, nema ef kornhálmur er nýttur og önnur ræktun sem ekki er nytjuð til búskapar, þar með talin sáning í golfvelli, tjaldstæði o.s.frv.
Í umsókn bús um framlög skulu koma fram upplýsingar um nafn, kennitölu og heimilisfang umsækjanda, búsnúmer og landnúmer jarðar sem ræktað er og framleiðanda er heimilt að nýta. Þá skal vera tenging við spildur í Jörð, þar sem liggur til grundvallar fullnægjandi túnkort af ræktunarspildu sem sótt er um styrk fyrir. Þegar ræktað er aðeins í hluta af spildu, sem sækja á um styrk út á, skal hnita þann hluta og skrá sérstaklega í túnkortagrunn sem nýja spildu.
Framlag á hvern hektara (ha) fyrir hvert bú tekur mið af heildarfjölda ha sem sótt er um. Fjöldi ha sem sótt er um skerðist í samræmi við eftirfarandi:
Fjöldi ha sem sótt er um | Stuðull umsóttra ha |
1-30 ha | 1,0 |
31-60 ha | 0,7 |
61> ha | 0,4 |
Framangreind stærðarmörk eru 2,5 sinnum hærri á svínabúum. Með svínabúi er átt við bú, þar sem stunduð er starfsleyfisskyld ræktun, eldi eða sala á svínum, haldnar eru að jafnaði a.m.k. 10 fengnar eða mjólkandi gyltur ásamt grísum eða þar sem er sambærileg ræktun eða eldi.
Í þeim tilfellum sem grasfræi er skjólsáð með grænfóðri eða korni er veittur jarðræktarstyrkur fyrsta árið. Þó svo að uppistaða uppskeru fyrsta árs sé grænfóður eða korn og uppskera annars árs sé gras, er veittur aðeins einn jarðræktarstyrkur vegna framkvæmdarinnar.
Greitt er út á heila ha og venjulegar reglur um upphækkanir gilda.
10. gr.
Landgreiðslur.
Framlögum skal ráðstafa á ræktað land sem uppskorið er til fóðuröflunar og framleiðanda er heimilt að nýta. Framlög eru ekki greidd út á land sem eingöngu er nýtt til beitar.
Í umsókn um framlög skulu koma fram upplýsingar um nafn, kennitölu og heimilisfang umsækjanda, búsnúmer, landnúmer þess lands sem uppskorið er til fóðuröflunar ásamt tengingu við spildur í Jörð, þar sem liggur til grundvallar fullnægjandi túnkort af landi sem sótt er um styrk fyrir. Þegar uppskorinn er hluti lands, sem sækja á um styrk út á, skal skrá sérstaklega þann fjölda hektara sem er uppskorinn.
Framlög taka mið af heildarfjölda ha sem sótt er um og deilast jafnt út á þá ha sem sótt er um stuðning fyrir. Greitt er út á heila ha og venjulegar reglur um upphækkanir gilda.
11. gr.
Takmörkun framlaga.
Framleiðandi getur ekki fengið framlög samkvæmt 9. gr. um jarðræktarstyrki og 10. gr. um landgreiðslur fyrir sömu spildur á sama ári.
12. gr.
Ágangur álfta og gæsa.
Heimilt er að greiða stuðning skv. 9. gr. vegna ágangs álfta og gæsa á ræktunarlandi bænda. Framkvæmdanefnd búvörusamninga ákveður hvort nota eigi heimild til þessa stuðnings. Verði heimildin nýtt skal ákvörðun þess efnis liggja fyrir eigi síðar en 20. september ár hvert.
Framleiðendur skuli skila inn rafrænni tjónaskýrslu í umsóknarkerfi Matvælastofnunar og er frestur til þess 20. október á því ári sem tjón verður.
Sé ákveðið að nýta heimild til að veita stuðning vegna ágangs álfta og gæsa skal stuðningur reiknaður með eftirfarandi hætti:
Hlutfallslegt tjón á uppskeru vegna ágangs álfta og gæsa |
Umfang tjóns á tjónaskýrslu |
Álag á stuðul umsóknar |
76% og yfir | Meiriháttar 76-100% | 76% |
Milli 51%-75% | Verulegt 51-75% | 51% |
Milli 26-50% | Umtalsvert 26-50% | 26% |
Milli 11-25% | Nokkuð 11-25% | 11% |
13. gr.
Fullnægjandi skil á skýrsluhaldi.
Til þess að uppfylla skilyrði um fullnægjandi skýrsluhald í jarðrækt þarf að uppfylla skráningar í Jörð og skrá eftirfarandi:
Þegar metið er hvort túnkort er fullnægjandi skal Matvælastofnun byggja það mat á því hvort fagaðili hafi teiknað og mælt viðkomandi ræktun með viðurkenndum aðferðum.
14. gr.
Úttektir.
Skilyrði þess að verkefni njóti framlags er að fram hafi farið úttekt.
Til að standast úttekt vegna jarðræktar og landgreiðslna þarf að liggja fyrir fullnægjandi stafrænt túnkort af ræktarlandinu í Jörð.
Úttektaraðili sannreynir stærð ræktunar og hvort skilyrði til styrkveitinga eru að öðru leyti, uppfyllt þar með talin styrkveiting vegna ágangs álfta og gæsa ef heimild til slíks er nýtt. Heimilt er að vettvangsúttekt fari einungis fram með tilviljunarkenndu úrtaki, óháð umfangi ræktunar.
Úttektaraðili skal vera starfsmaður búnaðarsambands eða leiðbeiningarmiðstöðvar sem hefur almenna þekkingu á viðkomandi sviði og Matvælastofnun viðurkennir. Um fyrirkomulag úttekta og kostnað við þær skal kveðið á um í samningnum Matvælastofnunar við úttektaraðila.
Úttektir á framkvæmdum skulu berast Matvælastofnun fyrir 15. nóvember á sama ári eftir að umsókn berst og skulu styrkir greiddir fyrir árslok.
Úttektir skulu skráðar með hnitsetningu í rafrænt umsóknarkerfi Matvælastofnunar.
IV. KAFLI
Nýliðunarstuðningur.
15. gr.
Stuðningur.
Matvælastofnun ráðstafar fjármunum til nýliðunarstuðnings. Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði.
16. gr.
Rétthafar stuðnings.
Framlög til nýliðunarstuðnings beinast að einstaklingum í eigin nafni eða til lögaðila sem nýliði á a.m.k. 25% hlut í.
Þeir einstaklingar einir geta sótt um nýliðunarstuðning sem uppfylla neðangreindar kröfur:
17. gr.
Auglýsing og umsókn.
Matvælastofnun auglýsir árlega nýliðunarstuðning. Umsóknum skal skila inn í rafrænt umsóknarkerfi Matvælastofnunar, eigi síðar en 1. júní ár hvert.
Umsókn skal innihalda:
Fylgiskjöl með umsókn:
Aðeins eftirfarandi fjárfesting telst styrkhæf við úthlutun nýliðunarstuðnings:
Kaup á lögaðila sem hefur eignarhald á styrkhæfri fjárfestingu, sbr. liði a-e í 4. mgr., eru styrkhæf á sama hátt og bein fjárfesting umsækjanda enda skal þá liggja fyrir sundurliðun á fjárfestingu, sbr. liði a-e í 4. mgr.
Matvælastofnun er heimilt að kalla eftir öðrum upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að leggja mat á umsókn og gildir heimildin í fimm ár frá því nýliðunarstuðningur var síðast veittur.
18. gr.
Forgangsröðun umsókna.
Matvælastofnun er heimilt að forgangsraða umsóknum um nýliðunarstuðning með vísan til eftirfarandi þátta:
Matvælastofnun semur nánari reglur um forgangsröðun umsókna skv. 1. mgr. þar sem hver þáttur er metinn til stiga og birtir áður en opnað er fyrir umsóknir. Umsóknir skulu flokkaðar eftir stigafjölda.
19. gr.
Hámark stuðnings.
Nýliðunarstuðningur er veittur til fjárfestinga í búrekstri. Stuðningur getur að hámarki numið 20% af heildarfjárfestingakostnaði á ári og skulu framlög til einstakra nýliða ekki vera hærri en níu milljónir króna í heildarstuðning.
Framlög skerðast hlutfallslega á allar samþykktar umsóknir ef fjármunir hrökkva ekki til. Þær umsóknir sem lenda í forgangi skv. ákvæðum um forgangsröðun í samræmi við 18. gr. ganga fyrir öðrum umsóknum við styrkúthlutun.
Stuðningur til nýliða sem á hlut í lögaðila skal taka mið af eignarhlut nýliða í lögaðilanum.
Ef Matvælastofnun telur að fjárfestingakostnaður á ári sé hærri en eðlilegt getur talist skal stofnunin taka tillit til þess við útreikning á endanlegri styrkupphæð. Matvælastofnun skal upplýsa umsækjanda um slíkar breytingar og gefa honum hæfilegan frest til andmæla.
Heimilt er að veita stuðning við sömu fjárfestingu í allt að þrjú ár, þó aldrei umfram hámark skv. 1. mgr.
20. gr.
Úthlutun.
Matvælastofnun staðfestir ákvörðun um veitingu nýliðunarstuðnings með tilkynningu til umsækjanda.
21. gr.
Endurgreiðsla.
Matvælastofnun er heimilt að krefjast endurgreiðslu nýliðunarstuðnings ef í ljós kemur að umsækjandi hafi veitt rangar eða villandi upplýsingar eða leynt upplýsingum sem áhrif höfðu á veitingu stuðnings.
Hafi nýliði hætt búrekstri innan fimm ára frá því að nýliðunarstuðningur var síðast veittur er Matvælastofnun heimilt að krefjast endurgreiðslu á greiddum stuðningi, að hluta til eða í heild sinni, ásamt kostnaði við innheimtu.
V. KAFLI
Lífræn framleiðsla.
22. gr.
Stuðningur.
Matvælastofnun ráðstafar þeim fjármunum sem ætlaðir eru til að styðja við aðlögun að lífrænum framleiðsluháttum.
23. gr.
Rétthafar stuðnings.
Framleiðendur sem uppfylla skilyrði 3. gr. og hafa byrjað lífræna aðlögun í landbúnaði undir eftirliti faggildrar vottunarstofu og í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara, með síðari breytingum, geta sótt um aðlögunarstuðning.
Skilyrði fyrir stuðningi eru fullnægjandi skil á skýrsluhaldi í þeim búgreinum sem við á hverju sinni.
24. gr.
Auglýsing og umsókn.
Umsóknum skal skila inn í rafrænt umsóknarkerfi Matvælastofnunar, eigi síðar en 15. maí ár hvert. Í umsókn skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:
Fylgiskjöl með fyrstu umsókn:
25. gr.
Hámarksframlög.
Matvælastofnun annast úthlutun aðlögunarstuðnings. Stuðningur við hvern framleiðanda getur að hámarki numið 50% af árlegum aðlögunarkostnaði skv. 4. tl. 1. mgr. 24. gr. með tilliti til umfangs aðlögunar. Hver framleiðandi getur þó ekki fengið hærra framlag árlega en 20% af heildarframlögum stuðningsins samkvæmt fjárlögum.
Heimilt er að veita framleiðanda árlegan aðlögunarstuðning á meðan aðlögun undir eftirliti faggildrar vottunarstofu stendur yfir. Umsækjandi skal þá sækja um að nýju skv. 24. gr. Ný umsókn skal vera með uppfærðum upplýsingum og fylgiskjölum auk þess skal fylgja með umsókn staðfesting faggildrar vottunarstofu á að aðlögun standi yfir samkvæmt áætlun.
26. gr.
Eftirlit og úttektir.
Matvælastofnun er heimilt að kalla eftir frekari upplýsingum frá framleiðanda telji hún þess þörf til að meta umsókn.
Hætti framleiðandi lífrænni aðlögun innan tveggja ára frá því aðlögunarstuðningur var síðast veittur er Matvælastofnun heimilt að krefjast endurgreiðslu á greiddum stuðningi, að hluta til eða í heild sinni, ásamt kostnaði við innheimtu.
VI. KAFLI
Geitfjárrækt.
27. gr.
Gripagreiðslur.
Matvælastofnun ráðstafar gripagreiðslum til eigenda sem uppfylla skilyrði 3. gr. fyrir það geitfé sem skráð er í Heiðrúnu. Matvælastofnun tekur ákvörðun um það hvaða framleiðendur uppfylla skilyrði reglugerðarinnar til að eiga rétt á gripagreiðslum og hver er fjárhæð greiðslna til hvers framleiðanda. Skýrslum skal skilað í Heiðrúnu eigi síðar en 12. desember ár hvert og gripagreiðsla skal greidd 1. mars árið á eftir.
Hlutdeild hvers framleiðanda í heildarframlagi til gripagreiðslna geitfjárræktar fer eftir fjölda geita samkvæmt afurðaskýrsluhaldi.
Matvælastofnun er heimilt að stöðva gripagreiðslur til framleiðanda vegna ófullnægjandi skila á haustskýrslu í Bústofni, ófullnægjandi merkingum geitfjár samkvæmt gildandi reglugerð um merkingar búfjár eða ef stofnunin telur að ráða megi af gögnum, eða ástæða er til þess af öðrum sökum að véfengja upplýsingar úr afurðaskýrsluhaldi framleiðanda. Matvælastofnun skal þá gera opinbera talningu á gripum framleiðanda.
Heimilt er að ráðstafa allt að 60% árlegs framlags til geitfjárræktar samkvæmt samningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins til gripagreiðslna.
28. gr.
Sláturálag.
Matvælastofnun skal ráðstafa framlögum til stuðnings við framleiðslu geitakjöts. Sláturálag er greitt á kiðakjöt og kjöt af fullorðnu sem er skráð í Heiðrúnu. Framlög skiptast jafnt á þá skrokka sem uppfylla gæðakröfur og skal Matvælastofnun greiða sláturálag til framleiðenda eigi síðar en 10. desember ár hvert.
Sláturálag skal reiknað með eftirfarandi stuðlum:
Tegund kjöts | Stuðull |
Kiðakjöt | 1,0 |
Kjöt af fullorðnu | 0,3 |
Heimilt er að ráðstafa allt að 17% árlegs framlags til geitfjárræktar samkvæmt samningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins til greiðslu sláturálags á geitakjöt.
29. gr.
Álag á mjólkurframleiðslu.
Matvælastofnun skal ráðstafa framlögum til álags á framleiðslu geitamjólkur. Álag á framleiðslu geitamjólkur er greitt fyrir þá lítra mjólkur sem eru innvigtaðir af aðilum sem hafa leyfi til að vinna úr geitamjólk. Sá aðili skal skila gögnum til Matvælastofnunar um magn innvigtaðrar mjólkur einstakra framleiðenda. Matvælastofnun skal greiða álag á framleiðslu geitamjólkur til framleiðanda eigi síðar en 10. desember ár hvert.
Heimilt er að ráðstafa allt að 8% árlegs framlags til geitfjárræktar samkvæmt samningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins til greiðslu álags á mjólkurframleiðslu.
Ef heimild 2. mgr. er ekki nýtt skal framkvæmdanefnd búvörusamninga ráðstafa framlaginu til annarra verkefna skv. VI. kafla.
30. gr.
Sæðistaka, geymsla og fleira.
Matvælastofnun skal greiða framlög samkvæmt framlögðum reikningi og samningi Geitfjárræktarfélags Íslands við sæðingastöð um geymslu á sæði, töku á sæði og tækjabúnað.
Matvælastofnun ráðstafar allt að 15% af árlegum framlögum til geitfjárræktar samkvæmt samningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins til geymslu sæðis, töku á sæði og tækjabúnað.
Ef heimild 2. mgr. er ekki nýtt skal framkvæmdanefnd búvörusamninga ráðstafa framlaginu til annarra verkefna skv. VI. kafla.
VII. KAFLI
Fjárfestingastuðningur í svínarækt.
31. gr.
Markmið.
Greidd eru framlög til fjárfestingastuðnings í svínarækt. Markmið stuðningsins er að auðvelda sérstaklega smærri svínabúum að hraða því að standast kröfur samkvæmt gildandi reglugerð um velferð svína, með síðari breytingum.
Heimilt er að ráðstafa allt að 60% árlegs framlags til fjárfestingastyrkja í svínarækt samkvæmt samningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins til greiðslu fjárfestingastuðnings.
32. gr.
Auglýsing og umsókn.
Matvælastofnun annast umsýslu vegna fjárfestingastuðnings. Ár hvert auglýsir Matvælastofnun eftir umsækjendum um framlög til fjárfestingastuðnings. Umsóknum skal skila inn í rafrænt umsóknarkerfi Matvælastofnunar, eigi síðar en 31. mars ár hvert vegna framkvæmda á árinu.
Framleiðandi í svínarækt sem heldur gyltur á búi sínu og uppfyllir eftirfarandi skilyrði, getur sótt um stuðning til fjárfestinga:
Í umsókn skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:
Fylgiskjöl með umsókn, eftir því sem við á:
Sótt er um fjárfestingastuðning eitt ár í senn. Sé fyrirhugað að framkvæmdir sem sótt er um stuðning fyrir verði framkvæmdar á fleiri en einu ári skal umsækjandi gera grein fyrir áfangaskiptingu við framkvæmdirnar í heild sinni í verklýsingu og verk- og kostnaðaráætlun. Heimilt er að veita stuðning við sömu framkvæmdir til allt að þriggja ára.
33. gr.
Skilyrði stuðnings.
Fjárfestingastuðningur er veittur framleiðanda skv. 2. mgr. 32. gr. sem hyggst fara í framkvæmdir til að hraða því að standast kröfur samkvæmt gildandi reglugerð um velferð svína, með síðari breytingum. Hafi framleiðandi fengið úreldingarbætur skulu þær dregnar frá þeim fjárfestingastuðningi sem honum er veittur.
Stuðningur er veittur vegna eftirfarandi framkvæmda:
34. gr.
Útreikningur fjárfestingastuðnings.
Matvælastofnun annast úthlutun fjárfestingastuðnings og leggur mat á hvort umsóknir uppfylli skilyrði reglugerðarinnar. Matvælastofnun skal tilkynna framleiðanda um afgreiðslu umsóknar eigi síðar en 15. maí ár hvert.
Fjárfestingastuðningur fyrir hvern framleiðanda getur að hámarki numið 40% af stofnkostnaði ef heildarkostnaður fer yfir eina milljón króna.
Kostnaður sem liggur að baki framkvæmdum sem óskað er stuðnings fyrir skal miðaður við staðalverð fyrir hverja einingu, svo sem gotbása, gólfgerð og fleira. Staðalverð eininganna skal staðfest af fagaðila, svo sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
Fjárfestingastuðningur skiptist hlutfallslega milli samþykktra umsókna. Hámarksstuðningur miðast við að meðalfjöldi gyltna hafi verið allt að 200 á árunum 2014-2016 samkvæmt haustskýrslu í Bústofni. Stuðningur skerðist í samræmi við neðangreinda töflu:
Gyltufjöldi | Stuðull skerðingar |
200 > | 1,00 |
175 - 199 | 0,94 |
150 - 174 | 0,81 |
125 - 149 | 0,69 |
100 - 124 | 0,56 |
75 - 99 | 0,44 |
50 - 74 | 0,31 |
25 - 49 | 0,19 |
0 - 24 | 0,06 |
Framlög skerðast hlutfallslega á allar samþykktar umsóknir ef fjármunir hrökkva ekki til.
Við upphaf framkvæmdar sem telst styrkhæf greiðast 50% af samþykktri stuðningsupphæð og 50% í framhaldi af skilum á lokaskýrslu. Matvælastofnun er heimilt að óska eftir afriti af reikningum vegna framkvæmda sem nutu fjárfestingastuðnings.
35. gr.
Eftirlit.
Matvælastofnun hefur eftirlit með því að stuðningur sem veittur hefur verið hafi verið notaður til þeirra fjárfestinga sem getið er um í umsókn skv. 32. gr.
Matvælastofnun getur framkvæmt úttekt á framkvæmd stuðningsþega telji hún þess þörf. Ef Matvælastofnun telur að framkvæmdakostnaður eða einstaka kostnaðarliðir hafi farið fram úr því sem eðlilegt getur talist skal taka tillit til þess við útreikning á endanlegri styrkupphæð. Matvælastofnun skal upplýsa stuðningsþega um allar slíkar breytingar og gefa honum hæfilegan frest til andmæla.
Matvælastofnun er heimilt að hafna umsókn ef gögn vantar í umsókn og/eða upplýsingar í umsókn eru ekki fullnægjandi, enda liggi málefnalegar og gildar ástæður því að baki og ekki hafi verið brugðist við áður gefnum fresti til úrbóta.
Komi í ljós að stuðningur sem greiddur hefur verið hafi ekki verið nýttur til framkvæmda sem sótt var um stuðning fyrir eða vikið hafi verið frá upplýsingum samkvæmt umsókn, skal framleiðandi endurgreiða þegar greiddan stuðning.
VIII. KAFLI
Úreldingarbætur í svínarækt.
36. gr.
Markmið.
Greidd eru framlög til úreldingar gyltuhúsa á árunum 2017-2021 í þeim tilgangi að hraða endurbótum í svínarækt til samræmis við kröfur í gildandi reglugerð um velferð svína, með síðari breytingum.
Heimilt er að ráðstafa allt að 40% árlegs framlags til fjárfestingastyrkja í svínarækt samkvæmt samningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins til greiðslu úreldingarbóta.
37. gr.
Rétthafar úreldingarbóta.
Framleiðendur sem uppfylla skilyrði 3. gr. og hafa haldið gyltur á árunum 2014-2016 geta sótt um úreldingarbætur í svínarækt.
38. gr.
Auglýsing og umsóknir.
Matvælastofnun skal auglýsa eftir umsóknum um úreldingu gyltuhúsa eigi síðar en 1. september 2018. Framleiðandi skv. 37. gr. skal skila inn í rafrænt umsóknarkerfi Matvælastofnunar, umsókn um úreldingarbætur, eigi síðar en 25. september 2018.
Í umsókn skal eftirfarandi koma fram:
39. gr.
Greiðsla úreldingarbóta.
Matvælastofnun skal greiða framleiðanda úreldingarbætur þegar samningi um úreldingu hefur verið þinglýst skv. 40. gr.
Úreldingarbætur skiptast hlutfallslega milli samþykktra umsókna. Hámarksbætur miðast við að meðalfjöldi gyltna hafi verið allt að 200 á árunum 2014-2016. Matvælastofnun skal staðfesta fjölda gyltna samkvæmt skráningum sem skylt er að skrá samkvæmt gildandi reglugerð um merkingar búfjár. Bætur skerðast í samræmi við neðangreinda töflu:
Gyltufjöldi | Stuðull skerðingar |
200 > | 1,00 |
175 - 199 | 0,94 |
150 - 174 | 0,81 |
125 - 149 | 0,69 |
100 - 124 | 0,56 |
75 - 99 | 0,44 |
50 - 74 | 0,31 |
25 - 49 | 0,19 |
0 - 24 | 0,06 |
Matvælastofnun hefur eftirlit með því að úreldingarbótum sem veitt hefur verið sé ráðstafað í samræmi við samning skv. 40. gr.
Gangi framlög til úreldingarbóta ekki út, skiptist fjárhæðin hlutfallslega á umsækjendur fjárfestingastuðnings skv. VIII. kafla.
Komi í ljós að úreldingarbætur hafi ekki verið nýttar í samræmi við samning skv. 40. gr. eða vikið hafi verið frá upplýsingum samkvæmt umsókn, er Matvælastofnun heimilt að stöðva greiðslur samkvæmt samningi skv. 40. gr.
40. gr.
Samningur um úreldingu.
Matvælastofnun annast úthlutun úreldingarbóta og fer hún fram með samningi um úreldingu á milli Matvælastofnunar og framleiðanda. Í samningnum skal tilgreina eftirfarandi:
Samningurinn skal gerður í þremur eintökum, skal eitt afhent viðkomandi sýslumanni til þinglýsingar, eitt afhent framleiðanda og eitt skal vera í vörslu Matvælastofnunar.
Samningi um úreldingu gyltuhúsa skal þinglýsa sem ótímabundinni kvöð á þá fasteign sem úreldingin nær til. Um aflýsingu kvaðarinnar fer eftir ákvæðum þinglýsingalaga nr. 39/1978.
41. gr.
Réttaráhrif úreldingar.
Úrelding tekur gildi frá 1. nóvember 2018. Úrelding nær til þeirra fasteigna sem nýttar hafa verið sem gyltudeildir á árunum 2014-2016.
Óheimilt er að nota fasteign sem úreldingin nær til fyrir gyltur eftir að úrelding hefur farið fram, nema sú notkun sé í samræmi við ákvæði samnings skv. 1. mgr. 40. gr. Kvöðin gildir í ótakmarkaðan tíma, sbr. 3. mgr. 40. gr. Aðrar takmarkanir eru ekki gerðar á notkun fasteignarinnar.
IX. KAFLI
Þróunarfjármunir búgreina.
42. gr.
Þróunarverkefni í garðyrkju, nautgriparækt og sauðfjárrækt.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins annast vörslu fjármuna vegna þróunarverkefna í garðyrkju, nautgriparækt og sauðfjárrækt en fjármunum er ætlað að styðja við kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun í framangreindum búgreinum. Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir eftir umsóknum tvisvar á ári, með umsóknarfresti 1. apríl og 1. október og úthlutar styrkjum eftir umsóknum og samkvæmt reglugerð þessari.
43. gr.
Umsagnir fagráða.
Fagráð í garðyrkju, nautgriparækt og sauðfjárrækt skulu gefa umsagnir um allar umsóknir sem sjóðnum berast, eftir því sem við á. Framleiðnisjóður skal taka ákvörðun um úthlutun styrkja með hliðsjón af umsögnum fagráðanna. Fagráðin skulu leggja faglegt mat á umsóknir um styrki. Meðmæli fagráðs er forsenda styrkveitingar. Sé fagráð vanhæft til að fjalla um umsókn skal það tilkynna stjórn Framleiðnisjóðs um vanhæfi sitt. Stjórn Framleiðnisjóðs er þá heimilt að afgreiða umsókn án umsagnar fagráðs. Stjórn Framleiðnisjóðs er heimilt í slíkum tilvikum, telji hún þess þörf, að leita til sérfræðinga eða fagaðila til að leggja mat á umsóknina.
Fagráð skulu setja sér verklagsreglur um mat á umsóknum um þróunarfé í viðkomandi búgrein. Í reglunum er heimilt að kveða á um hámarkshlutfall þróunarfjár af heildarkostnaði hvers verkefnis sem talið er styrkhæft.
44. gr.
Skipting heildarframlaga milli búgreina.
Heildarframlög til þróunarverkefna skiptast á milli búgreina með eftirfarandi hætti:
Í garðyrkju eru styrkhæf ráðgjafarverkefni, kynningarverkefni, rannsókna- eða tilraunaverkefni, vöruþróunarverkefni og endurmenntunarverkefni.
Í nautgriparækt eru styrkhæf þau verkefni sem talin eru að styrki íslenska nautgriparækt og fela í sér rannsóknir og þróunarverkefni.
Í sauðfjárrækt eru styrkhæf hver þau verkefni sem talin eru að styrki íslenska sauðfjárrækt og falla undir það að vera kennsla, rannsóknir, leiðbeiningar og/eða þróun í sauðfjárrækt.
45. gr.
Styrkþegar og umsókn.
Þrátt fyrir 3. gr. geta styrkþegar verið einstaklingar, rannsóknarhópar, háskólar, rannsóknarstofnanir, félög og fyrirtæki.
Umsóknum skal skila til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins á sérstökum eyðublöðum sem sjóðurinn lætur í té.
Umsókn skulu fylgja eftirtalin gögn, eftir því sem við á:
Framleiðnisjóður landbúnaðarins og fagráð geta óskað eftir frekari gögnum sé þess talin þörf til að leggja mat á umsókn.
46. gr.
Greiðsla.
Áður en styrkur er greiddur skal umsækjandi staðfesta að fjármögnun verkefnisins í heild hafi verið tryggð, sbr. d-lið 45. gr.
Greiða má allt að 40% af samþykktum styrk til styrkþega þegar verkefni er sannarlega hafið. 20% af styrk má svo greiða þegar áfangaskýrslu hefur verið skilað sem gefur til kynna að framvinda verkefnisins sé a.m.k. 60% af heildarverkefninu. Eftirstöðvar framlagsins 40%, má þá greiða þegar lokaskýrslu hefur verið skilað og hún samþykkt í viðkomandi fagráði. Framleiðnisjóði landbúnaðarins er þó heimilt að víkja frá þessu ef eðli verkefnisins eða aðrar veigamiklar ástæður krefjast þess.
47. gr.
Lokaskýrsla.
Styrkþegar skulu skila skýrslu um verkefnið til viðkomandi fagráðs eigi síðar en 6 mánuðum eftir að því lýkur. Sé verkefnið til lengri tíma en eins árs skal skila árlegri áfangaskýrslu. Í skýrslunni skal lagt mat á framgang verkefnisins og hverju það hafi skilað fyrir viðkomandi búgrein.
Framleiðnisjóði landbúnaðarins er heimilt að leita umsagna viðkomandi fagráðs um verkefnaskýrslur sem styrkþegum er gert að skila til sjóðsins. Allar lokaskýrslur skulu samþykktar í viðkomandi fagráði.
48. gr.
Styrkur fellur niður.
Styrkveitingar til verkefna þar sem ekki tekst að uppfylla skilyrði þessara reglna um skýrsluskil og lok verkefnis, skv. 45. og 46. gr., innan 12 mánaða frá því að Framleiðnisjóður landbúnaðarins samþykkir fyrirheit um styrk, falla niður. Framleiðnisjóði landbúnaðarins er heimilt, vegna sérstakra aðstæðna, að veita frest til ráðstöfunar framlaga á næsta ári eftir úthlutun, enda hafi borist formleg beiðni þess efnis frá styrkþega fyrir lok úthlutunarárs.
Framleiðnisjóði landbúnaðarins er heimilt að krefjast endurgreiðslu á greiddum styrk, að hluta til eða í heild sinni ásamt kostnaði við innheimtu, ef verkefni sem veittur hefur verið styrkur fyrir er ekki framkvæmt í samræmi við áætlanir.
X. KAFLI
Kæruheimild o.fl.
49. gr.
Kæruheimild.
Ágreiningi um ákvörðun Matvælastofnunar samkvæmt reglugerð þessari er heimilt að skjóta til úrskurðar ráðherra innan þriggja mánaða, sbr. VII. kafla stjórnsýslulaga.
50. gr.
Endurgreiðsla ofgreiddra greiðslna.
Ef greiðslur samkvæmt reglugerð þessari hafa verið ofgreiddar ber handhafa greiðslna að endurgreiða ríkinu hið ofgreidda fé. Beri að endurgreiða greiðslur skal handhafi endurgreiða greiðslur með vöxtum sem Seðlabanki Íslands ákveður og birtir skv. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, frá þeim tíma er greiðslan átti sér stað og þar til endurgreiðsla fer fram. Auk almennra vaxta skal handhafi greiða dráttarvexti skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, sbr. 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001. Vextir skulu þó ekki greiddir ef endurgreiðsla fer fram innan 30 daga frá því að greiðslan fór fram.
51. gr.
Skerðing og niðurfelling greiðslna.
Matvælastofnun er heimilt að skerða, fella niður eða krefjast endurgreiðslu á stuðningsgreiðslum samkvæmt reglugerð þessari ef framleiðandi gefur vísvitandi rangar upplýsingar eða brýtur á annan hátt skilyrði reglugerðarinnar.
52.gr.
Viðurlög.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt búvörulögum nr. 99/1993 og búnaðarlögum nr. 70/1998, með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið skv. lögum nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
53. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í búnaðarlögum nr. 70/1998, með síðari breytingum og búvörulögum nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi frá og með 1. janúar 2018.
Við gildistöku reglugerðarinnar fellur úr gildi reglugerð nr. 1240/2016 um almennan stuðning við landbúnað, með síðari breytingum.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. desember 2017.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Elísabet Anna Jónsdóttir.