1. gr.
Frá og með 8. desember 2017 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði úti fyrir Austurlandi, á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:
2. gr.
Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2018.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. desember 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Baldur P. Erlingsson.