1. gr.
2. málsl. 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi: Þá er heimilt að flytja allt að 20% af ónýttu aflamarki fiskiskips frá árinu 2017 til ársins 2018.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum og lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 6. nóvember 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Erna Jónsdóttir.