1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007 frá 26. október 2007, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/186 frá 2. febrúar 2017 um sérstök skilyrði sem gilda um aðflutning til Sambandsins á vörusendingum frá tilteknum þriðju löndum vegna örverumengunar og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 669/2009.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/186 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt vegna matvæla í samræmi við 6., 14. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Um eftirlitsgjald fer samkvæmt 25. gr. sömu laga.
4. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Á sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 418/2016 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/166 um sérstök skilyrði sem gilda um innflutning á matvælum sem innihalda eða eru úr betallaufum (Piper Betle) frá Indlandi og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 669/2009.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. október 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Eggert Ólafsson.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)