1. gr.
Við reglugerðina bætist bráðabirgðaákvæði svohljóðandi:
Heimilt er að flytja óveitt aflamark rækju við Snæfellsnes frá fiskveiðiárinu 2016/2017 yfir á fiskveiðiárið 2017/2018.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. ágúst 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Hinrik Greipsson.
Erna Jónsdóttir.