331/2017
Reglugerð um (82.) breytingu á reglugerð nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í II. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1768 frá 4. október 2016 um leyfi fyrir gúanidínediksýru sem fóðuraukaefni fyrir eldiskjúklinga, fráfærugrísi og eldissvín og um niðurfellingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 904/2009. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2017, frá 3. febrúar 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17, frá 16. mars 2017, bls. 30.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1833 frá 17. október 2016 um leyfi fyrir blöndu með lektínum úr nýrnabaunum (lektín úr Phaseolus vulgaris) sem fóðuraukaefni fyrir mjólkurgrísi (leyfishafi er Biolek Sp. z o.o.) Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2017, frá 3. febrúar 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17, frá 16. mars 2017, bls. 33.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1881 frá 24. október 2016 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 837/2012 að því er varðar lágmarksvirkni 6-fýtasa sem er framleiddur með Aspergillus oryzae (DSM 22594) sem fóðuraukaefni fyrir gyltur (leyfishafi er DSM Nutritional Products). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2017, frá 3. febrúar 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17, frá 16. mars 2017, bls. 742.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. mars 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Iðunn Guðjónsdóttir.