Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

300/2017

Reglugerð um togveiðar á kolmunna árið 2017. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til flotvörpuveiða íslenskra skipa á kolmunna í fiskveiðilögsögu Íslands, í fiskveiðilögsögu Færeyja og á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).

Fyrir tímabilið 1. janúar 2017 til 31. desember 2017 er leyfilegur heildarafli sem hér segir (magn í lestum):

A B C
264.000 13.992 250.008

Leyfilegur heildarafli.

  1. Skerðing skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%).
  2. Fiskistofa úthlutar til skipa á grundvelli aflahlutdeildar.
  3. Heimilt er hverju skipi að veiða allt að 10% yfir aflamark í kolmunna á árinu 2017 og dregst sá umframafli frá aflamarki þess á árinu 2018. Þá er heimilt að flytja allt að 10% af ónýttu aflamarki fiskiskips frá árinu 2017 til ársins 2018.

Af leyfilegum heildarafla er einungis heimilt að veiða 218.000 lestir í lögsögu Færeyja. Þannig takmarkast það magn sem hvert skip má veiða í lögsögu Færeyja við 82,5% af aflamarki skipsins í kolmunna.

2. gr.

Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda flotvörpuveiðar á kolmunna skv. 1. gr. án sérstaks leyfis Fiskistofu. Í leyfi Fiskistofu skal kveða á um takmörkun á veiðum skips í lögsögu Færeyja, sbr. 4. mgr. 1. gr., en í leyfinu skal einnig heimilað að færa rétt til veiða í lögsögu Færeyja milli skipa. Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda flotvörpuveiðar á kolmunna, sem hafa aflamark í kolmunna.

Fjöldi íslenskra skipa sem samtímis mega veiða kolmunna í lögsögu Færeyja takmarkast við 12.

3. gr.

Óheimilt er að stunda kolmunnaveiðar með flotvörpu vestan 20°30´ V og innan línu fyrir Suður- og Austurlandi sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 63°05,90´ N - 020°30,00´ V
  2. 63°11,40´ N - 019°07,30´ V
  3. 63°07,50´ N - 018°38,00´ V
  4. 63°09,00´ N - 018°27,00´ V
  5. 63°07,00´ N - 018°02,00´ V
  6. 63°12,50´ N - 017°00,00´ V
  7. 63°20,00´ N - 016°03,00´ V
  8. 63°22,50´ N - 015°51,00´ V
  9. 63°26,00´ N - 015°29,00´ V
  10. 63°30,70´ N - 015°00,00´ V
  11. 63°33,60´ N - 014°41,70´ V
  12. 63°43,40´ N - 013°53,00´ V
  13. 64°00,00´ N - 013°07,00´ V
  14. 64°21,70´ N - 012°17,30´ V
  15. 64°32,30´ N - 011°41,00´ V
  16. 65°00,00´ N - 011°28,00´ V
  17. 65°27,00´ N - 011°24,00´ V
  18. 66°06,00´ N - 011°33,00´ V
  19. 66°42,00´ N - 012°50,00´ V

og þaðan í rv. 305° að mörkum fiskveiðilögsögunnar. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru kolmunna­veiðar heimilar innan íslenskrar lögsögu vestan 27°30´ V.

4. gr.

Íslenskum skipum sem leyfi hafa fengið til kolmunnaveiða með flotvörpu er skylt að halda afla­dagbækur um veiðarnar, sbr. reglugerð nr. 746/2016, með síðari breytingum, um afla­dagbækur. Þar skulu m.a. koma fram upplýsingar um veiðisvæði, veiðitíma og afla í hverju togi. Skal Fiski­stofu sent afrit af afladagbókunum eigi síðar en 14 dögum eftir hver mánaðamót eða eftir að veiðum lýkur.

Þegar kolmunni er reiknaður til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,09.

5. gr.

Kolmunnasýni skulu tekin úr afla, a.m.k. eitt í hverri veiðiferð og skal skrá sýnatökuna í afladagbók skipsins. Í hverju sýni skulu vera 50 til 100 stykki af kolmunna sem valin eru af handahófi. Sýnin skulu fryst um borð, rækilega merkt (staður, dagsetning og dýpi) og send Hafrannsóknastofnuninni í Reykjavík eða útibúum stofnunarinnar að lokinni veiðiferð.

6. gr.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda kolmunnaveiðar í flotvörpu sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar Eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, um staðsetningu, stefnu og hraða viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.

Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga, sbr. 1. mgr., bilar, skal gert við hann við komu í næstu höfn. Þar til búnaðinum verður komið í lag, skal senda á annan hátt upplýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða skipsins á 4 klukkustunda fresti til Eftirlitsstöðvarinnar.

7. gr.

Um tilkynningar við kolmunnaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda ákvæði reglugerðar nr. 285/2014, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), með síðari breytingum, og taka þær tilkynningar einnig til veiða innan lögsögunnar sem og veiða í færeyskri lögsögu. Um tilkynningar til Færeyja vegna veiða innan færeysku lögsögunnar fer samkvæmt reglum færeyskra stjórnvalda.

8. gr.

Eftir að skip hættir veiðum og í síðasta lagi fjórum klukkustundum áður en áætlað er að það komi til hafnar skal skipstjóri senda Fiskistofu tilkynningu á því formi sem Fiskistofa ákveður um áætlaðan afla skipsins, fyrirhugaðan löndunarstað og fyrirhugaðan löndunartíma. Heimilt er að víkja frá lágmarkstíma t.d. ef fjarlægð milli fiskimiða og löndunarhafnar gefur tilefni til þess, enda sé þá tilkynning send um leið og veiðum er hætt.

9. gr.

Kolmunnaafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Heimilt er þó með leyfi Fiskistofu að landa kolmunnaafla og kolmunnaafurðum í höfnum erlendis enda sé tryggt að eftirlit með vigtun aflans sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Jafnframt er heimilt að fengnu leyfi Fiskistofu að landa óvigtuðum kolmunna um borð í vinnsluskip og flutningaskip, enda sé tryggt að skráning og vigtun afla sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Sækja skal um leyfi til löndunar kolmunna utan íslenskra hafna til Fiskistofu og skal skipstjóri í umsókn tilgreina nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og áætla magn kolmunna. Sé landað erlendis þarf jafnframt að tilkynna þar til bæru yfirvaldi í viðkomandi ríki um komu skips til hafnar innan tiltekins frests sem ákveðinn er af hafnríkinu. Tilkynningar skal senda með rafrænum hætti á heimasíðu NEAFC, https://psc.neafc.org. Frekari upplýsingar má finna á slóðinni https://psc.neafc.org/designated-contacts. Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um landaðan afla og afla­verðmæti, staðfestar af móttakanda kolmunnans eða staðfest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir. Um vigtun á kolmunna gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar um vigtun sjávarafla þó þannig að draga skal frá 2% af afla hvers skips vegna vatnsinnihalds í kolmunna miðað við afla upp úr sjó og reiknast það magn ekki til aflaheimilda þess. 

10. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 151/1996, um fisk-veiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Vegna afla umfram leyfilegt hámark skal beita ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla. Jafnframt er Fiskistofu heimilt að svipta skip leyfi til kolmunnaveiða vegna brota á reglugerð þessari.

11. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafn­framt fellur úr gildi frá sama tíma reglugerð nr. 1221/2016, um togveiðar á kolmunna 2017.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 6. apríl 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica