Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

126/2017

Reglugerð um (2.) breytingu við reglugerð nr. 87/2017 um loðnuveiðar færeyskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 2016/2017. - Brottfallin

1. gr.

1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Færeyskum skipum er heimilt að veiða samtals 14.950 lestir af loðnu í fiskveiðilandhelgi Íslands.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. febrúar 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica