1. gr.
1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Færeyskum skipum er heimilt að veiða samtals 2.850 lestir af loðnu í fiskveiðilandhelgi Íslands.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. febrúar 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Baldur P. Erlingsson.