1. gr.
13. töluliður töflunnar í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Tegund/lestir | A | B | C | D | E | F | F1 | G | H | I | J |
13. Íslensk sumargotssíld | 63.000 | 758 | 3.339 | 54.661* |
*5.000 tonn af sumargotssíld skulu flutt af fiskveiðiárinu 2016/2017 til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar á fiskveiðiárinu 2015/2016.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. júlí 2016.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ásta Einarsdóttir.
Sigríður Norðmann.