1. gr.
Við reglugerðina bætist svohljóðandi bráðabirgðaákvæði:
Þrátt fyrir 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar er skipum heimilt að stunda humarveiðar til og með 20. desember 2015.
Veiðieftirlitsmenn skulu vera um borð í skipum sem stunda veiðar á þessu tímabili eins lengi og þurfa þykir, samkvæmt nánari fyrirmælum Fiskistofu. Tilkynna skal Fiskistofu um fyrirhugaða brottför eigi síðar en einum virkum degi fyrir upphaf veiðiferðar.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. nóvember 2015.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Baldur P. Erlingsson.